27.11.2008 | 09:29
Að taka þetta ekki inn á sig er ekki í boði lengur - Finnst ég stundum ganga við hliðina á mér....................................
og ekki vera í tengslum við sjálfan mig. Umtalið í fjölmiðlum af kreppu, mótmælum, innbrotum, ofbeldi á börnum, þjófnaði, hvar við lendum og hvert við ætlum er farin að leggjast á herðar manns eins og mara.
Einn dagur í einu er bara ekki ásættanlegt, það verður að fara að koma einhver skíma frá yfirvöldum um að sé réttlætanlegt að halda áfram, annars mun þjóðin þjóðnýta sjálfa sig fleyta rjómann og fara svo úr landi.
Djöfull sem ég ætlaði ekki að láta þetta hafa áhrif á mig, t.d með því að ritskoða fréttir, hlusta á jólalög, baka piparkökur og þess háttar. En afsakið mig, það bara virkar ekki lengur og nú er mælirinn að fyllast.
Nú er eins gott að Davíð og Geir vandi sig með miljarðana sem eru að streyma inn í landið frá Alþjóðasamfélaginu, því hvað gerist ef krónan sekkur og miljarðarnir með?
Rannsökum, skjótum og hengjum seinna. Orkuna þarf að nýta í endurhæfingu þjóðar.
Heyrumst..............
IMF byrjaður að lána Íslandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já maður er frekar hokin af reynslu þessa dagana....
Hrönn Sigurðardóttir, 27.11.2008 kl. 10:05
Ía Jóhannsdóttir, 27.11.2008 kl. 10:51
Ég er alveg hjartanlega sammála þér. Nú verða hlutirnir að fara að ganga.
Sigríður Inga Sigurjónsdóttir, 27.11.2008 kl. 11:55
óska ykkur alls hins besta, hugsa mikið heim til ykkar !
Kærleikur til þín
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 28.11.2008 kl. 23:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.