o - Hausmynd

o

Myndband sem gott er að horfa á rétt fyrir svefninn................

maður sofnar svo óskaplega varlega.

Myndbandið er tvísýnt, sem sagt sýnt tvisvar í runu, og í seinna skiptið læt ég tónlistina dofna og náttúrulegu hljóðin frá veðri og vinnandi mönnum um borð í fylgdarskipinu spila sína tónlist í bland við hina.

Þetta kippir manni nokkur ár aftur í tíma þegar siglt var daglega inn og út með þessum hrikalegu hömrum gnæfandi yfir skipi og áhöfn. Og oft virtist vera tvísýnt um hvort skipið slengdist í klettavegginn en það voru snillingar í brúnni.

Ok, tónlistin í botn og myndbandið í fullscreen.

Að svo búnu sé ég öngva ástæðu til að vaka lengur.................................


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.11.2008 kl. 08:12

2 Smámynd: Sverrir Einarsson

Blautt, kalt og þynnka er það sem mér dettur í hug við að horfa á þetta.

Fékk þokkalegt nostalgíukast við að horfa á þetta. Rosalega svæfandi svona sjólag ef maður er ekki á vakt sko.

Sverrir Einarsson, 26.11.2008 kl. 08:33

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Ferlega flottur sjór! Ég hefði hinsvegar ekkert endilega viljað vera um borð í bátnum......

Hrönn Sigurðardóttir, 26.11.2008 kl. 09:07

4 identicon

Ég verð að viðurkenna að ég fékk smá velgju, þó mig langaði líka til að sigla með á bátnum.

Ásta S (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 15:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband