Er þá átt við að það sé verið að reyna að selja fasteignir, hjólhýsi míkrófóna og segulbönd?
Sit stundum heima og huxa um hvaða eignir blað þurfi, til að geta rekið sig.
Er ekki nóg að eiga ritvél og síma? Greiða húsaleigu og laun?
Viðskiptablaðið er sko flott nafn, en samt er Bændablaðið flottara.
Og hana nú...................
![]() |
Hvetur starfsfólk VB til atvinnuleitar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.11.2008 | 19:45
Tekur sæti á þingi ...................
Íturvaxin norðlensk skutla á besta aldri tók eitt sæti úr Landsbankanum á Akureyri (held ég að það heiti) og komst bara alls ekki upp með það. Jakkalafar bankans eltu hana um þvert og endilangt þorpið þangað til hún gafst upp á hlaupunum, og ákvað að verða bara listamaður.
Eygló Harðardóttir má taka sæti, og má líka setjast á Alþingið.
Má ég kasta hangikjöti í Alþingið? Neeee
Kveðja
Bjarni & Guðni ehf............................
![]() |
Eygló tekur sæti á þingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.11.2008 | 15:34
Alltaf er það jafn krúttlegt þegar fólk og landsbyggðarfólk............
er flokkað svo, þegar talað er um manneskjur.
Mómælandinn og vísnaraularinn Hörður Torfason spáði því í viðtölum við fjölmiðla nú fyrir helgina, að fleiri þúsundir borgarbúa mundu flykkjast í mótmælin hans og svo hafði hann líka heyrt í "fólki" utan af "landi" sem ætlaði jafnvel að leggja á, og þeysa í borgina.
Maður skreppur saman í fósturstellingu og dettur í gamla góða sveitalubba fílinginn.
Yndisleg tilfinning sem rifjar upp barnæskuna, unglinsárin, rollu og hrossalykt, ilm af nýskitinni kúadellu, súrheyslykt, hænsnailm, lykt af hundblautum hundum og svo ég tali nú ekki um ferskan norðan andvarann utan af Hrútafirðinum.
Afsakið, en ég er ekki að setja út á Hörð. Mér líkar þetta vel.
Stolt siglir fleygið mitt....................
14.11.2008 | 16:55
Hún var á Dalvík í fyrra............
en er á Ísafirði núna.
Geyið litla
Arrrrrrg hvað mér leiðist...............
![]() |
Engispretta á Ísafirði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
fyrir að birta þessar leynimyndir.
Þyrfti að fara að komast í tæri við tröll og steingervinga, snjó og vitlaus veður. Það hreinsar vel til í hausnum og gerir mann tilbúnari í að takast á við láglendisrugl og axlarbyrgðar.
En ég skal axla ábyrgð á því sem birtist hér, þó ég eigi engin axlabönd.
Jebb svona eiga hellisbúar að líta út..........
..........og jafnvel svona líka.
En svo má punta sig pínu á milli og setja upp sparibrosið.
Þetta er sko ekki tæmandi listi yfir verðmæti undirritaðs.
Það held ég, maðurinn er bara nokkuð hress með ungana sína, skítt með Icesave...................
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 23:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.11.2008 | 15:20
Hvurslags læti eru þetta út af Bretunum...................
þó þeir flögri aðeins hérna yfir skerið?
Mættu alveg lenda í smástund ef það væru brexkar kjéllingar með.
Síðast þegar þeir komu skildu þeir eftir sig þó nokkur erfðatengsl.
Hví ekki núna líka, bar gott mál að blanda pínu.
Allavega er skárra að fá Breta heldur en Hollendinga. Þær ku vera kolóðar með víni.
Annars ræður Ingibjörg Sólrún þessu víst.
Farinn að fá mér Brexkt tyggjó...........
![]() |
Kyssir ekki á vönd kvalaranna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)

11.11.2008 | 21:05
Kaldur andvari streymdi inn um gluggann minn........
og lagðist yfir vitin, þar sem ég hafði hreiðrað um mig í sófanum, með sængina. Ég hafði aðeins kveikt á einu ljósi, ljósinu sem lýsti upp Ikea-myndina á veggnum bláum geisla,
sængin blá,
himininn blár,
og saman mynduðu þessi þrjú fyrirbæri bláa lýsingu í stofunni,
í kvöld át ég saltfisk með kartöflum og hömsum.
Nei, í alvöru þá finnst mér stundum, nei oft, að ég þyrfti að vera með USB tengi í hnakkanum til þess að geta hlaðið sjálfvirkt niður á tölvuna öllum þeim fagurbókmenntum sem myndast í hvelinu heila.
Við svo búið má ekki Una, frænka....................
Ljóð | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Möguleg tilvitnun í hugsun hennar:"Sko þið þarna sem ætlið að láta frysta lán, munið að leggja fyrir peninga sem samsvarar hverri mánaðarlegri afborgun af láninu."
"Þið eruð sko ekkert að græða á þessu asnarnir ykkar, munið það. Lánið hækkar bara og þið verðið að eiga fyrir frystitímanum." Mögulegri tilvitnun líkur.
Jöss man. Til hvers að smella sér í frystinguna ef maður á fyrir helvítis afborguninni?
Mig vantar útskýringu á þessari Seðlagreiningu.
Ég vann einu sinni við Síldarfrystingu og fékk vel borgað fyrir það....................
10.11.2008 | 21:32
Var í leit að einhverju utan sólkerfisins til að styrkja mig í trúnni.................
Ég er við það að brenna yfir þegar fréttaþulurinn vísar á íþróttamann eftir lestur fréttanna. "Yfir til þín Hansi"
Hugsið ykkur að fullorðinn maður skuli gælunefndur Hansi, er ekki nógu slæmt að heita Hans?
Eða þá að vera konan Hans.
Getið þið ímyndað ykkur að maður sem heitir Þorvaldur geti verið fyndinn?
Hef líka heyrt að nafnið Geir-laug, án bandstriks, sé til einhverstaðar.
Það á að varða við almenn hegningarlög að nota þessi asnalegu tilfinngatákn.
En þetta var alls ekki það sem færslan átti að fjalla um, er búinn að steingleyma hvað það var.
Góða nótt, sofið rótt, í alla nótt og vaknið hress og kát á morgun.............