17.9.2008 | 14:37
Nýtt lyf við leiðinlegum bloggurum...................
notist eftir þörfum og helst í óhófi.
Kvöldganga í myrkri, roki og rigningu. Helst á fáförnum kindatroðningi og ef þú mætir manneskju sem þú vilt dyljast fyrir, þá gerðu þig kindarlegan svo þú fallir inn í umhverfið.
Mjög gott við rasisma, trúarofstæki, öfund, athyglissýki og náttúruleysi.
Ekki er æskilegt að fleiri en einn keppandi taki þá í senn.
Best er að vera óklæddur á göngunni.
Eftir göngu skal skrá niður líðan, og fá sér kakó.
Farinn í göngur.......................
Athugasemdir
Haha, en eru til leiðinlegir bloggarar?
Eru þeir ekki bara mismundandi skemmtó?
Knús á Skagann gamli jálkur.
Jenný Anna Baldursdóttir, 17.9.2008 kl. 14:40
Gakktu ekki yfir þig og fáðu þér svo skyrpunktums, þegar göngu er lokið
Ásdís Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 14:49
"...gerðu þig kindarlegan svo þú fallir inn í umhverfið."
Stundum finnst mér þú fyndinn
Hrönn Sigurðardóttir, 17.9.2008 kl. 14:51
Það eru bara til skemmtilegir bloggarar, hahahha.
Hafðu það gott.
Brynja Dögg Ívarsdóttir, 17.9.2008 kl. 14:59
Takk ljúflingar.
Hrönn, veit þetta alveg sko en sumum sést stundum yfir það.
Þröstur Unnar, 17.9.2008 kl. 15:58
Ha ha ha . Það er alltaf gaman að fá að fylgjast með þér uppá skaga! Hlakka til að koma í heimsókn næst, vonandi fljótlega.
Elska þig pabbi minn.
Jóhanna Lind Þrastardóttir (IP-tala skráð) 18.9.2008 kl. 10:27
Góður, að vanda
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 18.9.2008 kl. 14:10
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.