o - Hausmynd

o

Jiiiii minn eini hvað bloggið getur truflað mann.............

studying.gifvið skyldustörfin og annað.

Í gærkvöldi settist ég inn í kompu eins langt frá tölvunni og hægt var, með hrúgu af námsbókum hjá hinni tölvunni.

Markmiðið var skýrt og viljinn einbeittur, að skila verkefni í félagsfræði.

Gjóaði augunum annað slagið fram í stofu á kvikindið sem sýndi engi merki hreyfingar eða skilaboða, bloggið gapti á móti mér. 

Þoli ekki skjáhvíla.

Eftir klukkutíma hætti ég og stóð upp, þá búinn að mála eitt acryl-málverk. Mér heyrðist Snorra Edda hósta pínu, en það gat svo sem hafa verið sæta nágrannakonan mín.

Stofutölvuferlíkið hafði sigrað þessa lotu.

Hvað ungur nemur gamall lemur.

Í annarri lotu skal hún sigruð á Yppon....

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Þröstur ertu nemandi?  Hvað ertu að læra?  Trúi ekki þessu með akrilmálverkið en þú gætir verið að studera, trúi því alveg.

Ía Jóhannsdóttir, 18.9.2008 kl. 14:31

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Akkurru trúir þú því ekki ÍA? Ég er mjög listhneigður aðili.

Nokkuð laust pláss í Leifsbúð?

Stúderandi á félagsfræðibraut, nokkur fög í fjarnámi.

Þröstur Unnar, 18.9.2008 kl. 16:53

3 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Fyrir nokkrum mínútum frumsýndi ég á blogginu mínu bíómynd með þig í veigamiklu hlutverki. Of seint að láta setja lögbann á hana. Múahahahah

Guðríður Haraldsdóttir, 18.9.2008 kl. 17:35

4 Smámynd: Brynja skordal

þröstur geturu nokkuð lánað mér kjólinn

Brynja skordal, 18.9.2008 kl. 18:15

5 Smámynd: Þröstur Unnar

Skagaprýði verður fyrst að skila honum Brynja mín, svo máttu eig´ann.

Þröstur Unnar, 18.9.2008 kl. 18:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband