rífa sig út úr grámygluðum hversdagsleikanum, og bruna á fjöll?
"Páskaferð Vesturlandsdeildar verður farin 20 og 21 mars. Gist verður á Laugum í Sælingsdal og farið verður á Drangajökull annan daginn en eitthvað styttra hinn daginn. Við höfum möguleika á gistingu á Laugum aðfaranótt 20, 21 og 22 en upptekið er 23 mars en á Laugum er hægt að gista í herbergjum og höfum við aðgang að eldhúsi. Nákvæmari áætlun hefur ekki verið gerð en veður spilar þar inn í. Við reiknum með að fara af stað frá Laugum milli kl.8 og 9 þann daginn sem við förum á Drangajökul."
Eru ekki allir til í það?
Eða kannski bara vera heima og rífast á blogginu í mígandi þunglyndi yfir Bubba og Bigga, Brynju eða Báru.
Eða við bilaðar kjéllingar á MSN.......................
Athugasemdir
Ha Brynju???? Ekki ætla ég að vera heima fer í sumarbústað og ætla njóta þess með fjölsk og hlusta á BUBBA og busla í heitapottinum úða í mig páskaegg og fleira góðgæti En góða skemmtun í þinni fjallaferð þröstur
Brynja skordal, 12.3.2008 kl. 22:34
Brynja og Bára whattttttttttt?????????? Ég kem af fjöllum og það eru einu fjöllin sem verða í mínu lífi næstu ár.
Góða skemmtun samt Þrölli minn
Jenný Anna Baldursdóttir, 12.3.2008 kl. 22:54
Ekki spurning að drífa sig, fínt að vera á Laugum í Sælingsdal. Ekki net- eða gsm samband þar þó að viti.
Ekki laust við smá öfund hérna megin, þetta verður örugglega frábær ferð
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 12.3.2008 kl. 23:12
Hljómar alveg stórkostlega. Skemmtu þér sem allra best. Sjálf þrái ég að breyta til um páskana en það er svo sem ekki á boðstólnum.
Jóna Á. Gísladóttir, 13.3.2008 kl. 09:22
Hljómar mjöögg spennandi, ég verð heima í bullandi mömmuhlutverki. Stóru börnin koma heim erlendis frá og þá þarf að smakka á einni viku allan uppáhaldsmatinn sem mamma býr til, svo það verður gaman hér. Skemmtu þér vel á fjöllum, dölum. Verðurðu heima á næsta laugard.?? ég kem kannski á Skagann og var að spá í hvort ég ætti að plata þig í að ná í mig og skutlast með mér til einhverrar bloggvinkonu, bara hugmynd.
Ásdís Sigurðardóttir, 13.3.2008 kl. 16:03
góða ferð til fjallana !!!
fátt fallegra.
Blessi þig í kvöldið
Steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.3.2008 kl. 19:59
Takk fyrir nettar kveðjur öll saman nema Dúa, farðu að prjóna
Ásdís, ég hefði nú ekkert nema gaman að því að skutla þér milli húsa á Skaga vorum, en stefnan hefur verið sett á skuggabæinn þarna hinumegin við flóann vegna smávægilegra helgarviðgerða á Stóra-Rauð, sem verður náttlega að vera í fullkomnu jafnvægi ef farið verður á fjöllin vestfirsku um páska.
Þröstur Unnar, 13.3.2008 kl. 20:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.