o - Hausmynd

o

Lestur Fréttablaðsins - Heitt kakó og ristað brauð - Sunnudagur til sælu og pínu svima.......

HPIM3015er við vorum að hafa það kósý við eldhúsborðið komu að sjálfsögðu nokkrar dramatískar athugasemdir frá minni konu.

Er pabbinn fletti blaðinu og setti upp gleraugun: "Pabbi ég verð að fá gleraugu"

Hann: Af hverju?

Hún: Ég sé ekki neitt. W00t

Hann: Bendir á kakó. Hvað er þetta?

Hún: Kakó

Hann: Þá sérðu, er það ekki?

Hún: Ég sé ekki blaðið.

Hann gefst upp, og hún biður um Öskubusku með dönsku tali.GetLost

Pabbablogg................


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Segi það enn og aftur þessir ,,bloggkrakkar" eru séní 

Ía Jóhannsdóttir, 3.2.2008 kl. 18:30

2 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Eldklár stelpan og lætur pabba ekki snúa sér

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 3.2.2008 kl. 18:30

3 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Sniðug er hún!
En af hverju með dönsku tali?

Róslín A. Valdemarsdóttir, 3.2.2008 kl. 18:36

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Þetta eru stælar í henni Róslín, þar sem hún veit að það er hægt að velja mörg tungumál. Stundum vill hún ensku.

Þröstur Unnar, 3.2.2008 kl. 18:47

5 Smámynd: Róslín A. Valdemarsdóttir

Ég vildi allt á íslensku á þessum aldri, ég horfði ekki á nema það væri á íslensku.. greinilegt að æskan sé búin að breytast heilmikið frá því ég var yngri!!

Róslín A. Valdemarsdóttir, 3.2.2008 kl. 18:55

6 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hún verður þá ábyggilega snögg að læra erlend tungumál fyrst hún er farin að velja mismunandi svona ung, þau eru svo fljót að nema málin.  Hafðu það gott með yndinu þínu.

Ásdís Sigurðardóttir, 3.2.2008 kl. 20:05

7 Smámynd: Kristín M. Jóhannsdóttir

Flott stelpa. Greinilega gott samband á milli ykkar feðgina. Nú langar mig í rúnnstykki með osti og kakó. Get fengið ristað brauð hvenær sem er.

Kristín M. Jóhannsdóttir, 3.2.2008 kl. 20:55

8 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Rosalega áttu krúttlega stúlku.
Hún verður góð þessi - minnir mig á mína þegar hún var lítil  Alltaf með skemmtilegar athugasemdir og tilvitnanir.

Linda Lea Bogadóttir, 4.2.2008 kl. 11:00

9 Smámynd: Heiða  Þórðar

Hún er æðisleg....hlýtur að hafa fegurðina frá móður sinni

Heiða Þórðar, 4.2.2008 kl. 22:54

10 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Skemmtileg dama a ferð ..

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 4.2.2008 kl. 23:31

11 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krúttskí alveg klárlega.

Jenný Anna Baldursdóttir, 5.2.2008 kl. 20:19

12 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

haha gleraugu, spangir og aðrir fylgihlutir verða svo spennandi á vissum aldri.

Jóna Á. Gísladóttir, 6.2.2008 kl. 11:16

13 Smámynd: Jóna Á. Gísladóttir

þetta átti eiginlega að vera aukahlutir... held ég

Jóna Á. Gísladóttir, 6.2.2008 kl. 11:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband