Færsluflokkur: Bloggar
12.5.2007 | 12:32
Ef marka má kannanir
þá eru kosningar í dag. Ég held að þær heiti Sveitastjórnakosningar, en er ekki viss hvað þær heita í þéttbýlisstöðum, kannski Þorpsstjórnakosningar, eða Vesturlandsstjórnarkosningar. Ég sé að það er búið að flagga fánum sumstaðar við yfirgefin atvinnuhúsnæði og líma stórar myndir af brosandi mönnum og konum í gluggana, finnst soldið óþægilegt að labba þarna framhjá, eins og þau séu að horfa á mig og bjóðast til að hjálpa mér með lífið, þangað til kjörstaðir loka.
Ég reyni bara að horfa eitthvað annað og læt sem ég sjái þau ekki.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
11.5.2007 | 19:45
Gjörið svo vel að kjósa rétt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2007 | 22:07
Varð að stela þessu frá Bjarka
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
10.5.2007 | 21:55
Þvílík sóun
á kvöldinu að glápa á þetta júróvisjón krapp.
Hefði betur gert eitthvað annað og langar að ausa því úr mér hérna.
Ryksuga, Þurka af, Þurka á
Vaska upp, Vaska niður, Út í bíltúr, Út að labba, Sofa, Lesa blogg, ,,,
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.5.2007 | 20:16
Undir hrjúfu yfirborði
ertu örugglega hið besta skinn Hrollur minn.
Þetta er eitt besta bloggið sem ég les og höfðar mest til mín allavega núna þegar pólitíks ræpan er allsráðandi. Oft hef ég hugsað um hvort ég ætti bara ekki að skella mér í þetta lífsmunstur, ef það væri hægt, en verð bara svo anskoti þunnur daginn eftir og hef ekki lyst á bjór næstu dagana, þannig að það gengur ekki.
En án alls gríns þá finnst mér hrein snilld þetta blogg hjá Hrólfi og hvað hann kemur orðum vel á (blað) lyklaborð. Heyrðu kallinn hafðu samband ef þú villt gefa þetta út á bók, þá skal ég pikka fyrir þig
Keep on blogging Hrólfur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.5.2007 | 21:04
Framhald frá fyrra degi
Stjörnuspáin mín í mogganum:
Hrútur: Hugsaðu um að skreyta heimili þitt með sama útbúnaði og þú myndir vilja gefa ástvini. Kannski sófa með hlébarði munstri - hvernig líst þér á?
Djúpt?
Hef eiginlega ekkert annað að skrifa um. Var að horfa á frambjóðendur funda, frá Egilstöðum, aumingja Guðríður (heitir hún það ekki,taflkonan?) hún bjóst ekki við því að þurfa að svara spurningunni, æi ég man ekki hver hún var, en vildi bara vera á móti því sem Framsókn var að gera. Þetta kom nú hálf kjánalega út hjá henni og Valgerður fljót (enda vön) að grípa gæsina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2007 | 21:55
Gleymdi einu
Rakst á þessa viðvörun í IKEA bæklingnum þar sem ég var að spá í sjónvarpsskenk.
"Gott að vita
Mældu dýpt og breidd sjónvarpstækisins.Það ætti að vera minna en sjónvarpshúsgögnin."
Eins gott að maður sá þetta áður en maður álpaðist til að kaupa skenk sem svo væri minni en sjónvarpið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.5.2007 | 21:42
Vangaveltur um
hvernig ég á að innrétta nýju íbúðina.
Stofa: Dökk eða ljós húsgögn, létt eða þung?
Svefnherbergi: Ekkert val... er fyrir risa rúm án gafla og dökk viðar náttborð.
Eldhús: Borð og stólar ljóst eða dökkt? Þurkaðir blómvendir upp um alla veggi? Olíur í krukkum ofan á skápum? Te og kaffikrúsir á hillum? Stór eldhúsklukka með handmáluðum myndum? Gluggatjöld - nei þetta er of mikið fyrir mig, verð að finna hönnuð í nautsmerkinu.
Bless
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.5.2007 | 21:51
Meira um Kastljós
Þessir þættir þar sem stjórnmálamenn koma saman og segja ekki neitt, eru ekki að skilja neitt eftir sig nema pirring hjá mér.Þátturinn hefst yfirleitt á því að stjórnandinn spyr spurningar og krefst vara strax, eða "örstutt", þetta "örstutt"er svo endurtekið í hverri spurningu stjórnanda.Þar af leiðandi eru svörin náttúrulega eftir því. Ef menn geta ekki romsað út úr sér einhverju sem stjórnanda líkar á fimm sekúntum, eins og (Steingrímur J einn getur) snýr stjórnandi sér undan og að öðrum. Mér finnst nú að RUV mætti eyða aðeins meiri tíma í þetta.
Til hamingju launþegar með daginn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.4.2007 | 20:53
Það er svo margt...
sem hægt er að lesa hérna þá þessum bloggsíðum en mest, þó um stjórnmál. En sem betur fer á það eftir að lagast eftir kosningar. Ég roðna bara þegar les öll gáfu bloggin frá ykkur um allt þetta sem á að vera svona en ekki hinsegin, roðna bara yfir því að hafa ekker til (kosninga) málanna að leggja.
En þið eru samt öll frábær, fínt að hafa svona mikið að lesa, verst að þá bloggar maður ekkert sjálfur á meðan.
Var að horfa á Kasljós áðan, og þvílíkt klúður hjá honum Helga greyinu, ég hálf vorkenndi honum að vera búinn að koma sér í þessa klípu með bullinu í sér og geta ekkert gert nema skammast sín, sem mér nú sýndist hann hafa gert. Jónína komst vel af með kauða og kláraði hann næstum strax.
En mér finnst þetta nú fullmikið hjá þessum miðli að næla sér í sögur til að blása út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)