Færsluflokkur: Bloggar
5.7.2007 | 09:06
Fæ alltaf hland fyrir hjartað
Keyrði út í Ljótapoll | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.7.2007 | 19:41
Þarf ég að flýja bæinn minn
eða á ég bara að taka þátt.
Um helgina verða haldnir svokallaðir Írskir dagar á Akranesi. Mikil hátið sem endar með Lopapeysuballi í sementsgeymslu Sementverksmiðjunnar.
Bubbi, Buff, Matti í pöpunum o.fl sjá um stuðið. Leitað verður að rauðhærðasta einstaklingnum og allskonar húllum hæ.
Búist er við 10 þúsund manns, djísús kræst.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
4.7.2007 | 18:41
Búið að slökkva á Jóhönnu Sigurðardóttur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.7.2007 | 22:53
Babado Novo
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.7.2007 | 19:26
Litla listakonan
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.7.2007 | 22:28
Af því að mig langar svo oft í gítarskóla
en, það bara gerist ekki.
Hér eru nemendur Paul Green School of Rock Music að fremja Led Zeppilin´s Traveling Riverside Blues
Enjoyyyyy.
http://www.youtube.com/watch?v=YZkajWxaTGs
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
1.7.2007 | 21:25
Tók nokkur gítargrip
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.7.2007 | 18:02
Pabbi komdu heim,
segir Ey-Dísin mín stundum þegar hún þarf að fara heim til mömmu sinnar.
Var að lesa bloggið hennar Jennýar http://jenfo.blog.is/blog/jenfo/entry/252356/ og fékk alveg rifu á hjartað. Hvað þau geta haft mikil áhrif á mann, eitt augnablik, og svo eftir annað augnablik er allt í fína, og farin að dunda sér. En maður er bara svo skíthræddur um að særa til frambúðar.
En oftast er þetta líka í góðu lagi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
30.6.2007 | 22:58
Þyrlan tók fram úr mér á ofsaharaða
Ákvað að skreppa í Hrútafjörðin og kíkja á liðið, en með hálfum huga þó. Ég bjóst við umferðaröngþveti á þjóðveginum, en ekki mikil umferð.
Hoppaði upp í Big-Red upp úr kl 14 og rúllaði af stað.
Nokkrir aldraðir undir Hafnarfjalli sem óku á 70 og ég sá hvíta hnúa handa þeirra ríghalda um stýrið þegar ég silaðist framúr þeim. Á heiðinni var ég stoppaður af útlensku pari sem sögðu að felgurærnar væru að losna af bílaleigubílnum þeirra og engin verkfæri um borð. Því miður gat ég ekki hjálpað þeim því minn lykill passaði ekki. Frábært veður fyrir norðan.
Kíkti á sumarhúsalóðina mína.
Fékk kaffi og kökur, síðan bara brunað heim á leið og ferðarinnar notið vel í lítilli umferð, bæði á vegum og í lofti.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.6.2007 | 21:45
Mútuþægni kvenna á blogginu
Ég varð að múta Gurrý http://gurrihar.blog.is/ með mynd af Himnaríki, til þess að hún gerðist bloggvinur minn.
Að vísu held ég að inngangurinn sé í hinum endanum, þar sem hún tekur á móti okkur þegar við kveðjum þessa bloggvist.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)