15.2.2009 | 09:49
Posing in front of dry cleaning system..................
Hundleiðinlegt veður gæti sett _ í reikninginn þar sem við ætluðum í bíltúr eitthvað út í buskann í dag, með nesti, nýja skó og myndavélar.
Það er ævintýri fyrir barn að skottast úti í náttúrunni á meðan pabbinn myndar í gríð og erg. Setjast niður með mjólk í flösku og gæða sér á brauðsneið.
En ekki er lognblett að finna hér á Skipaskaga og dökkt inn í sveitir að sjá, svo spurning hvort ætti að heimsækja Borgina og grýta endur með brauðskorpum. Heimsókn til stóra stráksins okkar væri kostur í leiðinni ef hann væri ekki á þvælingi með túrhesta á fjöllum.
Annars erum vð hrikalega hipp og kúl, og ánægð með Júróvíson.......
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Ég er viss um að sú stutta hefur rétt verið búin að segja "pabbi taka mynd" þegar þú smeltir líka þessari fínu mynd af fyrirsætunni.
Hér er ekkert að gerast bara væta og rigning til skiptis.
Sverrir Einarsson, 16.2.2009 kl. 06:58
sæt stelpa. vonandi hafið ið fundið eitthvað skemmtilegt að gera saman !
Kærleiksknús
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 19.2.2009 kl. 08:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.