o - Hausmynd

o

Fékk hland fyrir hjartað...........

Skvísurþegar ég las hér á fárveiku Morgunblaðinu, að það væri landsleikur í gangi.

Þetta kom eins og þruma úr heiðtæru hálofti og sló mig beint í aldraðan minnislykilinn, sem vaknaði af dvala og lét mig tengja við fréttina.

Þá kom í ljós að þetta var bara skvísu-landsleikur.Crying

 

 

 

Ok held áfram að skúra og hlusta á káká syngja þú og ég.............


mbl.is Ísland færðist skrefi nær EM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú gerir þér auðvitað grein fyrir því að þetta "bara" skvísulið á möguleika á að komast lengst allra liða í knattspyrnu frá upphafi íþróttarinnar á Íslandi, er það ekki? Tel það þó nokkuð merkilegra en "árangur" veikburða karlaliðs okkar, enda Ólafur þjálfari sagt það sjálfur upphátt að liðið eigi ekki von um að komast áfram í undankeppni HM.

Fyrir utan það að þjóðinni veitti nú ekki af smá jákvæðum fréttum af árangri erlendis, þannig að ég ætla að bjóða þér að stíga niður af hásæti þínu og endurskoða þetta viðhorf þitt gagnvart kvenfólki í íþróttum.

Jón Flón (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 15:47

2 identicon

bara skvísu-landsleikur...

skammastu þín.

Kristinn Snær Agnarsson (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 15:51

3 Smámynd: Róbert Þórhallsson

Skammarlegt að þessi leikur sé ekki sýndur í sjónvarpinu.

Róbert Þórhallsson, 26.10.2008 kl. 15:56

4 Smámynd: Stefán Þór Steindórsson

Sjónvarpið mitt eða allavega textinn sem kemur á skjáinn þegar ég skipti á RUV segir að landsleikur sé í gangi þar... ætli þeir hafi gleymt að kveikja á myndavélinni... Skammarlegt af RUV

Stefán Þór Steindórsson, 26.10.2008 kl. 16:01

5 Smámynd: Guðrún Jónsdóttir

Noh, minn bara búinn að hleypa mönnum upp hérna

Ég sem ætlaði að koma með smá fyrirlestur, sé að ég þarf þess ekki

Guðrún Jónsdóttir, 26.10.2008 kl. 16:15

6 Smámynd: Smári Jökull Jónsson

Vonandi að síðuhaldari sé með misheppnaðan djók í gangi, þegar hann talar svona niður til stelpnanna. 

Þeir hjá RÚV töluðu ansi mikið um það fyrir helgi að þeir hefðu gert allt sem þeir gátu til að tryggja útsendingu á leiknum, en allt kom fyrir ekki. Írska ríkissjónvarpið var ekki tilbúið að senda tökulið á leikinn sem RÚV myndi borga, RÚV fékk ekki mannskap ytra til að taka leikinn upp fyrir þá og svo virðist ekki hafa verið möguleiki á því að senda hreinlega mannskap út til að taka upp og sjá um þetta.

En auðvitað eiga leikir sem þessir að vera sýndir, jafnvel þó það sé "bara" skvísu-landsleikur

Smári Jökull Jónsson, 26.10.2008 kl. 16:29

7 identicon

Ríkisútvarpið og sjónvarpið ættu að skammast sín.

Reynið að hlusta á GSM útsendingu útvarpsins frá landsleiknum.!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

Skammist ykkar.

hjalti (IP-tala skráð) 26.10.2008 kl. 16:31

8 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Hehe... þeir sem halda að Þröstur sé að dissa stelpur hafa ekki lesið bloggið hans og þekkja ekki strákinn.

Hann er að stríða ykkur, kjánaprik! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 26.10.2008 kl. 16:53

9 Smámynd: Þröstur Unnar

Gunna þó. Datt þér virkilega í hug að flytja opinbera stríðsyfirlýsingu við aldraðan bróður þinn hér?

Strákar mínir róið ykkur inn í kvöldið.

Takk Lára Hanna að standa með gamlasínum í galsanum.

Þröstur Unnar, 26.10.2008 kl. 17:38

10 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

BARA?

Jenný Anna Baldursdóttir, 26.10.2008 kl. 17:57

11 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þessu hafðirðu nú gaman af!

Hrönn Sigurðardóttir, 26.10.2008 kl. 19:40

12 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

heheheh meira svona!!!  Skemmtileg uppákoma hér.  Kveðja inn í góða viku Þröstur minn.

Ía Jóhannsdóttir, 27.10.2008 kl. 08:25

13 Smámynd: Guðríður Haraldsdóttir

Hahahhaha, þetta er fyndin færsla og frábær komment. Hættu að æsa upp strákana! Stelpurnar þekkja þig orðið.

Guðríður Haraldsdóttir, 27.10.2008 kl. 23:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband