8.10.2008 | 09:04
"Íslenska ríkisstjórnin tilkynnti mér í gær, hvort sem þið trúið því eða ekki, að hún ætlaði ekki að standa við skuldbindingar sínar hér,"
Segir Gordon Brown forsætisráðherra Bretland.
Hann hótar aðgerðum.
Á maður að vera smeykur við sprengjuvélar eða kafbáta?
Hvernig ætlar hann að innheimta skuld við gjaldþrota þjóð?
Skríðum í holur og verjumst góðir Íslendingar.
Annars skil ég ekki þetta með íþróttafélögin, sem eru að sameinast, reka mann og annan, og allt á hausnum þar á bæ. Var einhver að gammbla þar með peninga þegar allt var í góðu gengi í spreðinu?
Brown hótar aðgerðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
tjah.... mér sýnist mitt heimalið færast upp um deild við þessa íhugun um sameiningu.
Ég er alltaf að græða!
Hilsen fra landsbyen
Hrönn Sigurðardóttir, 8.10.2008 kl. 09:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.