30.9.2008 | 15:21
Þó mér líki yfirleitt ágætlega við brjóst..............
þá bara hef ég ekki brjóst í mér til þess að halda þessu áfram svona.
Mig grunaði að flettingar ykjust um c.a heilan helling við það eitt að tengja við fréttir mbl.is.
En fyrr má nú aldeilis dauðrota. Flettingar í dag hjá mér hafa slegið í eittþúsund og það finnst mér eiginlega alveg nóg, og mér finnst fingrafaralykt af skjánum mínum.
Tilraunin er afstaðin esskurnar, svo hættið þessari forvitni.
Mun blogga um brauðuppskriftir hér eftir........................
Fyrir ykkur sem vitið það ekki, þá er ég of ungur til þess að binda mig, hvernig sem á það er litið........
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Athugasemdir
Ha, ha ha ha þanna karamelludeigið þitt
Ásdís Sigurðardóttir, 30.9.2008 kl. 15:23
Þetta síðasta um að vera of ungur... humm... hljómaði eins og þú værir að varpa togveiðibúnaði í sjóinn...
Kreppumaður, 30.9.2008 kl. 15:34
Kreppi. Það er hægt að líta þannig á það ef maður kýs svo.
En ég kýs að líta frekar á mig sem varðskipsmann með klippurnar úti.
Ásdís, er´t að segja að ég sé feitur?
Þröstur Unnar, 30.9.2008 kl. 15:43
Gott að vita af þér á vakt þegar landhelgisbrjótar frá Póllandi tröllríða íslenskum karlpeningi í von um landvistarleyfishjónabönd!
Kreppumaður, 30.9.2008 kl. 15:50
Krútt.
Jenný Anna Baldursdóttir, 30.9.2008 kl. 20:38
Hvað er í þessu brauði hér að ofan sem þú ert að baka þarna???
Brynja skordal, 30.9.2008 kl. 21:17
Fingrafaralyktina má hreinsa með öllu með smá væmni
Bullukolla, 30.9.2008 kl. 21:17
Brynja. Sendi þér uppskriftina í bankapósti.
Arna. Bara sammála þér og reyndar Jenný líka.
Þröstur Unnar, 30.9.2008 kl. 22:23
já skil borgar sig ekki að setja neitt á netið
Brynja skordal, 30.9.2008 kl. 22:54
Hm......... það er lykt af þessu. Best að segja sem fæst orð
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 30.9.2008 kl. 23:46
Vað a misheppnaði saumaklúbbur er þetta Þröstur?
Kreppumaður, 30.9.2008 kl. 23:57
góð tilraun,
hehe hafðu fallegan dag þröstur
knús
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 1.10.2008 kl. 07:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.