21.9.2008 | 09:12
Erfið lífsreynsla ungrar stúlku............
er hún þurfti að verða vitni að því þegar nákominn ættingi hennar veiktist skyndilega og kalla verð til sjúkrabíl. Pabbinn var ekki á staðnum en kom um hæl, sótti stelpuna sína og saman fóru þau heim til hans.
Það tók hana langan tíma, langt fram yfir háttatíma, að tjá sig út um málið. En að lokum sofnaði hún og svaf vært í nótt.
Samt á þetta líklega eftir að poppa upp aftur hjá henni og þá þarf að ræða málið upp á nýtt og reyna að útskýra ýmislegt sem svona ung stúlka skilur ekki alveg í fyrstu atrennu.
Pabbinn hafði ætlað að skreppa í bæjarrölt til borgarinnar en var hættur við förina, af einhverri óútskýranlegri tregðu þegar kallið kom.
Núna er Mikki Refur á skjánum og til þess að sjá hann betur er ágætt að hafa höfuðljós:
"og líka til að sjá þig betur, pabbi "
Annars erum við bara þokkaleg hérna þó örli á morgunþreytu, og ættinginn að ná sér.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 09:13 | Facebook
Athugasemdir
Jenný Anna Baldursdóttir, 21.9.2008 kl. 10:01
Hrönn Sigurðardóttir, 21.9.2008 kl. 10:32
Hún var ótrúlega heppin, litla skottan að Pabbi skyldi vera nálægur. Það verður ekki af þér skafið að þú ert heimsins besti pabbi.
Vonandi jafnar sú stutta á þessari uppákomu sem getur ekki annað en haft áhrif á hana. Það er þó með ólíkindum hvað þessi litlu skott eru fljót að aðlagast og sætta sig hlutina, ekki síst þegar allt endar ve.
Gangi ykkur öllum sem best í dag.
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 21.9.2008 kl. 10:47
hún er svo sæt litla stelpan þín, sem á pabba sem passa hana.
gott að ættingjanum er að batna
Kærleikur til þín inn í kvöldið.
SteinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 21.9.2008 kl. 19:03
Brynja skordal, 21.9.2008 kl. 23:01
Ía Jóhannsdóttir, 22.9.2008 kl. 10:45
Takk fyrir okkur.
Þröstur Unnar, 22.9.2008 kl. 15:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.