1.9.2008 | 15:02
Er að hugsa um að ráða mig sem aupair til Búlgaríu..........
en þarf samt fyrst að fara í lagningu og litun, ná í tönnurnar mínar úr viðgerð og fá mér nýtt gerviauga. Held ég geti skilið hækjuna eftir heima því það er svo hlýtt þarna úti að mjöðmin lagast örugglega heilmikið.
Mér skilst að ég lendi í launaflokki Búlgarskra fræbblatínslumanna, en það verður bara að hafa það þó launin séu ekki há. Ég er að vísu ekki alveg búinn að skrifa undir samninginn, en þetta kemur allt saman.
Veit ekki hvort ég get bloggað þarna.
Eru þeir með símalínur í Búlgó?
Jiiiii hvað mig hlakkar til.
Farinn á fótboltaæfingu........................
Flokkur: Pepsi-deildin | Facebook
Athugasemdir
Víst geturðu bloggað, þú verður hjá nöfnu minni er þaggi mundu bara að vera í pilsi. dýrslegar kveðjur
Ásdís Sigurðardóttir, 1.9.2008 kl. 21:43
Það verður nú notalegt í Búlgaríu hjá þér ... hehehehhe, taktu samt göngugrindina með til öryggis. M'uahahhahah
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 2.9.2008 kl. 15:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.