27.7.2008 | 23:02
Já fröken nú skal eldað.........
hvað heldurðu manneskja. Það vefst nú ekki fyrir þeim gamla að sletta einni steik á pönnuna, eftir að hafa hlustað á tónleika aldarinnar, so far.
Á maður ekki alltaf að fá sér skyrtu í stíl við eldhúsgardínurnar?
Hér er nefnilega hugsað um það sem maður er að gera, og verkið klárað:
"Jæja er maturinn tilbúinn pabbi"?
Annars bara góður, eftir ágæta mynd í flataranum, um stríðshörmungar elskenda í Þýskalandi.
Svo var nú gaman að hlusta á viðtalið við Geir Jón í morgun, held ég sé alveg að ná því þroskastigi að fyrirgefa kallinum það að hafa handtekið mig í Bekkjabíl á Þjóðhátíð endur fyrir löngu, og læsa mig inni í fangaklefa í 30 mín.
Sakargiftir: Rétti einum biksvörtum á lúðurinn, nóta bene, eftir að hann hafði hafið tilraun til hins sama við mig.
"Rasismi" sagði fóstur í löggubúningi, um leið og hann hvarf á bak við Geir Jón.
Geir Jón: " Ertu ekki til í að vera inni í svona hálftíma vinur, á meðan þetta róast allt saman? Þú mátt hafa gítarinn hjá þér"
Dómsorð 30 mín. seinna: " Nokk, nokk. Drífa sig á lappir bekkjabíllin bíður, ætlarðu að missa af Þjóðhátíðinni?
Guð geymi ykkur öll, amen......
Athugasemdir
Hvað er bekkjabíll?
Lára Hanna Einarsdóttir, 27.7.2008 kl. 23:10
Bíll sem flytur gesti og gargandi inn og úr draumadalnum í Eyjum.
Þröstur Unnar, 27.7.2008 kl. 23:15
Aha... ég skil! Hef aldrei farið á þjóðhátíð og veit því ekkert um siðvenjur á þeim bæ.
Lára Hanna Einarsdóttir, 27.7.2008 kl. 23:35
Ætlaði að spyrja þess sama og LH. Nú er það á hreinu.
Flott höfuðfat.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.7.2008 kl. 23:42
Er sakl í fyrirsögn skal?? eða er ég eitthvað skrítin. Flott nýja myndin þín.
Ásdís Sigurðardóttir, 27.7.2008 kl. 23:49
Þröstur Unnar, 27.7.2008 kl. 23:50
Já Hallgerður. Lenti þarna fyrir tilviljun á síðustu öld, í fiskvinnslu. Varð ekki afturkvæmt fyrr en átta eða tíu árum senere, með próf í brauða og kökugerð upp á vasann.
Leikmunur úr eldhúsleikriti okkar Eydísar eru á höfði voru.
Þröstur Unnar, 28.7.2008 kl. 13:25
Lærði í Magnúsarbakaríi þegar bræðurnir voru saman með það, en Andrés var meistarinn minn. Já það var eftir seinni heimstyrjöldina.
Þröstur Unnar, 28.7.2008 kl. 14:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.