19.6.2008 | 10:46
Til hamingju með daginn...........
Nú fáum við eitthvað gott að borða í kvöld.
Leyfum elskunni okkar að vera í bleiku á meðan hún eldar kvöldmatinn. Við gætum jafnvel verið í bláu á meðan við horfum á boltann og steikarilmurinn fyllir eldhúsið.
Bleikt og blátt er bara flott saman.
Við gætum svo jafnvel hjálpað henni að skúra á eftir.
Því ekki það.........
Athugasemdir
Ég vona að þú verðir aleinn til æviloka karlrembusvínið þitt.
Og á meðan ég man, til hamingju með daginn.
Jenný Anna Baldursdóttir, 19.6.2008 kl. 10:58
Hehehe Jenný segir allt sem segja þarf, karlremba getur þú verið. Hér verður sko eldað fyrir mig nú ef ekki þá meiga bara allir éta það sem úti frýs!
Njóttu dagsins í bláu með boltanum!
Ía Jóhannsdóttir, 19.6.2008 kl. 12:07
Þið eruð vondar konur.
Þröstur Unnar, 19.6.2008 kl. 12:14
Þú ert agalegur!
Huld S. Ringsted, 19.6.2008 kl. 15:48
Hlustaðu ekki á þessar femínistabeljur, Þröstur minn.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 19.6.2008 kl. 19:05
Gurrý ertu að kalla okkur beljur á almennum vetvangi, skammastín bara!
Ía Jóhannsdóttir, 19.6.2008 kl. 20:14
Hehe já komin skýringin á einveru þinn i Þröstur...
Linda Lea Bogadóttir, 20.6.2008 kl. 11:42
Úps, sorrí Ía, ég missti þetta bara út úr mér. Einhver varð að halda með Þresti, granna mínum.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 20.6.2008 kl. 17:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.