o - Hausmynd

o

Ný vinnuvika hafin.............

img_0013og þar með vinnuhelgi afstaðin. Skelfilega gott að byrja venjulega viku aftur. Mánudagar eru að verða mitt uppáhald vegna þessa.

Svo sem ekkert vígalegt í fréttum, nema að litla dúllan mín hefur verið meira og minna lasin í viku, með upp og niður hitaköst og líklega eitthvað í eyrunum. Hún var hjá pabba sínum á föstudag og fram á miðjan laugardag:

 

 

 

Pabbi nú líður mér betur. (ef hún fékk að horfa á Ávaxtakörfuna)

Ég er ekki lasin.

Mér líður illa.

Pabbi koddu og hugsaðu um mig.W00t

Hef verið hryllilega latur að blogga og að kommenta hjá bloggvinum mínum og bið forláts á því, en lengi skal manninn bæta.

Síjúol...........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Mánudagar er bara ágætir, þá er líka öll vikan eftir

Búin að vera lasin litla ljósið þitt, æ vonandi fer henni að batna svo hún geti verið hress hjá pabba sín.

Ía Jóhannsdóttir, 14.4.2008 kl. 19:58

2 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Bíddu, bíddu, bíddu...  Vinnurðu bæði virka daga og um helgar? Hefurðu aðra atvinnu um helgar en virka daga?

Voðalega væri gaman að heyra að einhver sé jafnruglaður vinnulega séð og ég... 

Lára Hanna Einarsdóttir, 15.4.2008 kl. 00:18

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Neibb Lára Hanna, sama jobbið.

Þröstur Unnar, 15.4.2008 kl. 18:12

4 Smámynd: Marta B Helgadóttir

Kvitta fyrir mig

Marta B Helgadóttir, 15.4.2008 kl. 23:18

5 Smámynd: Halla Rut

Litla snúllan.

Halla Rut , 16.4.2008 kl. 10:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband