8.4.2008 | 18:33
Í sandölum og ermalausum bol................
Búinn að gefast upp á vetrinum. Maður kemst hvort sem er ekki spönn frá rassgati, þannig að snjórinn má víkja fyrir einhverju öðru. Ekkert varð úr jeppaferð um síðustu helgi vegna drykkjuskapar meðlima og anna við að vinna einhverja fjandans sönglagakeppni á Grand Rokk. Jebb, það var nebblega Bjarni sem rúllaði þessu upp á Grandinu, með sandpappír, þvottabretti og vasaljós að vopni. Snilli kallinn sá. En hefði ég fengið að ráða þá hefði frekar verið valin fjallaferð.
Best að fara að gretta sig framan í gula fíflið.
Á maður kannski að vera í hvítum sokkum í sandölunum?
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Athugasemdir
Þú ert í einkennisbúningi íslenskra karlmanna í sumarleyfisferðum innanlands. Sko sokkar og sandalar. Ég dey.
Hehe
Jenný Anna Baldursdóttir, 8.4.2008 kl. 23:09
Nákvæmlega, flott lúkk
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 9.4.2008 kl. 00:47
NEI ! EKKI Í SOKKUM Í SANDÖLUM! ALDREI!
Bara á táslunum.
Lára Hanna Einarsdóttir, 9.4.2008 kl. 12:16
NEI, heyrði einmitt í dag um eina sem afneitaið deiti af því að hann var í hvítum sokkum í sandölum
Blessi þig
steina
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 9.4.2008 kl. 17:12
Flottur...
Linda Lea Bogadóttir, 9.4.2008 kl. 20:33
Farðu úr sokkunum næst þegar þú ferð í útivistarferð með gula fíflinu. Heheheh
Ía Jóhannsdóttir, 9.4.2008 kl. 20:37
Njóta þess að vera á táslunum þegar að sú gula skín skært En ertu útilegugítarglammrariásumrinjahhérnahér
Brynja skordal, 10.4.2008 kl. 00:52
Sko, þegar ég er að gera grín af sjálfum mér, þá vil ég alls ekki að aðrir séu að gera það líka. Það virkar sem tvöfalt niðurbrot.
En, what ever.............
Þröstur Unnar, 10.4.2008 kl. 13:54
Krútt
Brynja skordal, 10.4.2008 kl. 16:01
Gula fíflið... er það sólin?
Marta B Helgadóttir, 11.4.2008 kl. 00:49
Jebb Dúa.
Þröstur Unnar, 11.4.2008 kl. 20:08
Svar til Mörtu minnar ef ég má Þröstur já Gula fíflið er sólin þetta fyrirbæri sem sker í augun og getur angrað suma en glatt aðra.
Henti Dúu líka út, kann ekki að koma henni inn aftur en e.t.v. vill hún ekkert með mig hafa og þá verð ég bara að bíta í það súra, en ef.............. hvað geri ég þá?
Ok nú er ég búin að gera þinn athugasemdadálk að mínu svo fyrirgefðu frekjuna, langaði bara að koma þessu hér á framfæri.
Bestu kveðjur inn í vornóttina til ykkar allra.
Ía Jóhannsdóttir, 11.4.2008 kl. 20:50
Velkomið Ía.
Er ekki viss um hver þessi Dúa er, allavega er hún ekki bloggari.
Þröstur Unnar, 11.4.2008 kl. 21:15
Skilið
Ía Jóhannsdóttir, 11.4.2008 kl. 21:27
Marta B Helgadóttir, 12.4.2008 kl. 22:06
Sæll Þröstur. Nú er bókaspjallið hafið á síðunni minni
Marta B Helgadóttir, 13.4.2008 kl. 09:51
BANNAÐ að vera í sokkum og sandölum!!!! Ekki gera það aftur. Það er alþjóðleg samstaða meðal kvenna þessa heims að útrýma þessum vágesti í eitt skipti fyrir öll og verðirðu uppvís að þessum ósóma aftur fer þetta beint í SÞ.
...en gítarinn fer þér vel
Laufey Ólafsdóttir, 17.4.2008 kl. 23:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.