4.4.2008 | 17:54
Læt mig stundum hafa það að vera klipinn í rassinn................
en það var einmitt gert við kassann í Einarsbúð, nú í Akranes síðdegis. Að þessu sinni var það skiljanlegt þar sem ég stóð á kjaftatörn við eitt fjallatröllið í hópnum okkar og ræddum við morgundaginn, hversu fagur og fríður hann yrði til fjallaskrepps. Nautahakkið kraumaði á sjóðheitum afgreiðslukassanum í steikjandi síðdegissólinni og lyktin var dásamleg.
Ok, ég bað kaupmannskonuna afsökunar á blaðrinu og sá útundan mér stingandi augnaráð þeirra sem á eftir mér komu í röðinni, en klíparinn slapp.
Jebb, fjöllin á morgun esskurnar.................
Átti ekki mynd af mér, þessi verður að duga...............
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:59 | Facebook
Athugasemdir
Á semsagt að rassast upp á fjöll á morgun?? ekkert klíperí þar - góða helgi dúllan mín.
Ásdís Sigurðardóttir, 4.4.2008 kl. 17:59
Já það gerast stundum ólíkustu hlutir við kassann. Góða ferð á fjöll og skemmtilega helgi Þröstur minn.
Ía Jóhannsdóttir, 4.4.2008 kl. 18:01
Hvað gerist þegar gellan sest niður.......?????????
Halla Rut , 4.4.2008 kl. 18:43
góða skemmtun á fjöllum - verður bara toppur þar
Rebbý, 4.4.2008 kl. 19:10
Takk fyrir mig.
*Úps Halla, hafði ekki hugsa svo langt.
Þröstur Unnar, 4.4.2008 kl. 19:12
Flottast á fjöllum, ekki amalegt að hafa eina með til að klípa. Vonandi slepptir þú nautahakkinu, ekki beinlínis neytandavænt eftir sólbaðið
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 4.4.2008 kl. 19:39
Góða helgi fjallageit
Marta B Helgadóttir, 4.4.2008 kl. 23:04
Það endar með því að við hittumst. Ég var í Einarsbúð um sexleytið. Ég myndi þó aldrei þora að klípa mann í rassinn, algjör heigull/dama/tepra.
Skemmtu þér vel á fjöllum.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 5.4.2008 kl. 00:01
Rosalegur bossi er þetta sem þú hefur fundið til að skreyta færsluna með.
Hagaðu þér eins og maður á fjöllum.
Jenný Anna Baldursdóttir, 5.4.2008 kl. 00:20
Stóðstu við gefið heit að vera ber að ofan í stuttbuxum (og sandölum) í fjallaferðinni???
Lára Hanna Einarsdóttir, 7.4.2008 kl. 11:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.