o - Hausmynd

o

Þú smellir bara á stjórnborð og síðan velur þú ný færsla............

HPIM3037þar með ertu komin af stað og getur byrjað að bulla, meina blogga.

Það er einmitt það sem ég er að gera núna, og ég veit að það fer í þær fínustu hjá sumum. En votta hekk.

Samband mitt og rafvélarinnar sem kallast tölva, hefur ekki verið upp á það besta undanfarið. Eiginlega svo slæmt að liggur við tímabundnum skilnaði á borði. Ég veit að ég á meginsökina, en stundum finnst mér eins og hún sé með óraunhæfar væntingar gagnvart mér, þegar ég kveiki á henni, hún heimti eitthvað eða krefjist.

Ætla bara að sjá til eitthvað fram á morgundaginn, hvort þetta lagast ekki bara að sjálfu sér, áður en farið verður til sambandsráðgjafa.

Jebb hún er nú líka svo miklu yngri en jeg............

Var að huxa.

Manstu eftir:

Óskalögum sjómanna?

Óskalögum sjúklinga?

Lögum unga fólksins?

Neibb ekki ég..............


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Jóna Gunnarsdóttir

Það er með þetta samband eins og öll önnur, hæðir og lægðir. Ástandið á eftir að skána aftur, trúðu mér

Ég man vel eftir óskalögum........, hrikaleg staðreynd og segir allt sem segja þarf

Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 3.4.2008 kl. 21:35

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Já, ég man eftir þessu öllu, manst þú eftir spurningaþáttunum með Svavari Gests??   "og það var rétt" og manstu eftir útvarpsleikritunum??  svo er þetta votta jehóva ekki votta hekk   Belly Laugh 

Ásdís Sigurðardóttir, 3.4.2008 kl. 23:06

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Man eftir þessu ölli gamli minn.

Knús

Jenný Anna Baldursdóttir, 3.4.2008 kl. 23:30

4 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Hvort ég man, svo líka Radio Luxemburg heheheheh þú manst ekkert eftir því er það.  Kveðja inn í bjartan daginn.

Ía Jóhannsdóttir, 4.4.2008 kl. 08:45

5 Smámynd: Brynja skordal

já man eftir þeim lög unga fólksins mikið hlustað þar  Hafðu ljúfa helgi

Brynja skordal, 4.4.2008 kl. 13:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband