26.3.2008 | 08:50
Vegna utanað komandi þrýstings...........
sérstaklega frá manneskju sem ég hef aldrei séð, og einnig til að halda í ævafornar hefðir, sem ég að vísu hef margt fyrir löngu lagt af, þá sé ég mig einfaldlega knúin til að upplýsa samfélagið um það að ég á afmæli í dag.
Er ekki alveg með á hreinu hve mörg afmæli ég hef átt, en who kjers, not me.
Komaso og syngja ........ nei nei ekki upphátt asnarnir ykkar.
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Athugasemdir
Gjugg í borg. Þú ert fimmtíu og eitthvað. Sumir sem sumir hafa aldrei séð eru magnaður þrýstiHÓPUR.
Til hamó.
Jenný Anna Baldursdóttir, 26.3.2008 kl. 08:56
Birna Dis Vilbertsdóttir (IP-tala skráð) 26.3.2008 kl. 09:03
Innilegar hamingjuóskir og njóttu dagsins. Aldur er afstæður, svo það sé á tæru
Ía Jóhannsdóttir, 26.3.2008 kl. 09:34
Til hamingju með daginn, ungi maður... Ef eitthvað er að marka Dúu erum við jafnöldrur, ég næ þér í desember...
Lára Hanna Einarsdóttir, 26.3.2008 kl. 10:23
Æi takk esskurnar og sérstaklega Lára Hanna.
Þröstur Unnar, 26.3.2008 kl. 11:20
Innilega til hamingju með afmælið.
Marta B Helgadóttir, 26.3.2008 kl. 11:25
Til hamingju með ammlið ungi maður!
Ég get hughreyst þig með því að þú ert ekki jafngamall og foreldrar mínir. Samt ekki jafnungur og ég Sko! Ég kann alveg að gleðja fólk!
Eigðu frábæran dag! Aldur er ekkert afstæður, hann er fjarstæður.
Laufey Ólafsdóttir, 26.3.2008 kl. 13:16
Þú ert semsagt rétt rúmlega árinu eldri en ég. Ég verð 52 þann 5.apríl. Innilega til hamingju með daginn kallinn minn, gott að vera svona fiftý something, hættum bara að telja.
Ásdís Sigurðardóttir, 26.3.2008 kl. 13:48
Til hammara með ammara!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 26.3.2008 kl. 15:33
Til hamingju með afmælið!! Ég er laglaus svo ég ætla ekki að syngja
Huld S. Ringsted, 26.3.2008 kl. 16:26
heyrðist söngurinn minn upp á skaga?
til lukku með daginn ..... merkilegt hvað allir eru að eldast þessa dagana en líta samt betur út en nokkru sinni fyrr ..... á örugglega við um þig líka
Rebbý, 26.3.2008 kl. 18:54
INNILEGA til hamingju með daginn.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 26.3.2008 kl. 19:33
Á ekki orð og ætla ekkert að reyna að vera fyndinn, bara hjartans þakkir fyrir kveðjurnar.
Þröstur Unnar, 26.3.2008 kl. 21:18
Til hamingju með Afmælið
Brynja skordal, 26.3.2008 kl. 23:43
Innilegar hamingjuóskir með daginn. Fjörið rétt að byrja
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 27.3.2008 kl. 00:03
Æ æ, ég fylgist ekki nógu vel. Alltof sein að senda afmæliskveður. Vona að það sé í lagi að fá eina svona eftirá.
Kristín M. Jóhannsdóttir, 1.4.2008 kl. 06:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.