25.3.2008 | 21:39
Viðurkenni hér með.................
að ég hafði óeðlileg áhrif á gengið fyrir páskana.
Keypti nebblega slatta af borðum, stólum hillum og öðrum óþarfa sem nota bene, teljast stundum til nauðþurfta fyrir fólk sem býr inni í húsum og þarf að hafa gögn í kring um sig.
Veit ekki hvaðan Davíð hefur fengið þessar vísbendingar, en huxa málið.
Þessi færsla er alfarið á mína ábyrgð, og nei mér leiðist ekki........
Einhverjir kunna að hafa haft óeðlileg áhrif á gengið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Ef þetta eru húsgögnin þá er ég að deyja úr öfund. Var að panta mér ný garðhúsgögn og þau eru ekki næstum því eins flott og þessi en samt aðeins í áttina.
Skil samt ekki hvað maður er að vesenast í garðhúsgögnum þegar maður getur ekki farið út fyrir dyr nema dúðaður upp fyrir haus. Er að klikkast hérna á þessum norðangarra sem allur kemur frá ykkur þarna uppi í norðrinu.
Gaman að heyra frá þér Þröstur minn.
Ía Jóhannsdóttir, 25.3.2008 kl. 21:49
Já Ía. Var að horfa á fréttir frá mið Evrópulöndunum, mikið um fjöldaárekstra vegna snjókomu og hálku.
Reyndar eru þessi húsgögn ekkert lík mínum.
Þröstur Unnar, 25.3.2008 kl. 22:05
Þú og mublur, veistu hvar Davíð keypti ölið?? í Flóanum hahahaha
Ásdís Sigurðardóttir, 25.3.2008 kl. 22:51
Vaxtalögreglan er á leiðinni og þú verður grillaður. GRILLAÐUR
Jenný Anna Baldursdóttir, 25.3.2008 kl. 23:18
Kvitta fyrir mig.
Marta B Helgadóttir, 25.3.2008 kl. 23:30
Innlitskvitt!
Ég hætti aldrei að hugsa um Stóra rauð, ég hélt fyrst þú værir að tala um teiknimyndahundinn!!
Róslín A. Valdemarsdóttir, 26.3.2008 kl. 00:46
En hvað ég er fegin að þetta var þér að kenna! Ég hef verið í felum því ég hélt það væri ég... úff.
Laufey Ólafsdóttir, 26.3.2008 kl. 13:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.