18.11.2007 | 21:53
Stelpur stripplast og strákar syngja, söngleikurinn á Broadway í boði sítt að aftan kynslóðinni......
Í fjörutíu og fjögurramanna hópi var bara skelfilega gaman á Broadway. Ágætis sýning og jólahlaðborð á undan, sem ég að vísu skrópaði í. Undarlegt með mig að fara ekkert nema í stórum hópum. Er samt staðráðinn í að fara einhverntíma síðar, í smærri hópum.
Eftir þessa ágætis ferð í borgina þar sem ég gisti á Park-Inn hótelinu, ruddist yfir mig mikill svefndrungi sem varaði í allan gærdag og mestan daginn í dag. Held ég hafi smitast af dálítilli fyrirjólatíðaspennu eða kvíða sömu sortar, þarna hinumegin við flóann. Sá ekkert morð, nauðgun eða pissandi fólk, sem betur fer.
Sjúkkitt..........
Flokkur: Matur og drykkur | Facebook
Athugasemdir
Sjúkket, gott þú slappst heim óámiginn. Ertu ekki vel inni í hlutunum eftir gistingu á Park-Inn?? hvar er það annars?? Eigðu góða viku gamli minn.
Ásdís Sigurðardóttir, 18.11.2007 kl. 22:07
Kórrétt Lísa mín en gleymdi að draga frá glugganum.
Þröstur Unnar, 19.11.2007 kl. 17:10
Þröstur; híhí, er það ekki hjarðeðlið sem gerir það að verkum að fólk ferðast í hópum og það er leim að fara ekki á hlaðborðið sjálft. Namminammi.
Jenný Anna Baldursdóttir, 19.11.2007 kl. 22:12
Jú Jenný hjarðeðlið í okkur bændunum. Annars voru 38 konur 7 karlmenn í hjörðinni, þannig að ég lét nægja að koma síðar um kvöldið til að skoða rústir hlaðborðsins.
Þröstur Unnar, 19.11.2007 kl. 22:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.