o - Hausmynd

o

Naflaskoðun,

HRÚTUR
Hrúturinn er oft grannur og spengilegur, með augabrúnir og nef sem minna á táknið fyrir stjörnumerkið.

HUX

Hann er lítið hrifinn af skrautgripum og fötum sem hefta hreyfingafrelsi hans, enda er hann hvatvís og lifandi og fljótur að bregðast við.

True

Hrúturinn er eldmerki, svo fólk sem fætt er í Hrútnum hefur oftast ríka þörf fyrir að tjá sig í verki. Það er dugandi, blátt áfram og á bágt með að þola tafir og aðgerðaleysi.

True

Hrútar eru óþolinmóðir og þrjóskir, en þeir eru líka gæddir persónu-töfrum og stefna einbeittir að settu marki. Þeir eru fæddir leiðtogar og fljótir að hugsa, en eðlislæg hreinskilni veldur því að þeir eiga bágt með að segja ósatt og Hrútar eru oft bæði saklausir og einlægir í hjarta.

True

Hrútar hafa gaman af íþróttum, helst ef í þeim felst hraði, hreyfing og líkamleg snerting, enda finnst þeim fátt verra en sitja aðgerðalausir.

True

Hrúturinn er í eðli sínu brautryðjandi, svo hann hneigist til að velja sér starf sem krefst frumlegrar hugsunar, og margir Hrútar gerast vísindamenn, uppfinningamenn, skurðlæknar, geðlæknar eða sálfræðingar, en Hrúturinn gæti allt eins tekið upp á því að reka eigin fyrirtæki, iðulega innan nýrrar starfsgreinar.

True 

Hrútar heillast líka af stjórnmálum og eru oft virkir félagar eða í stjórn síns stéttarfélags.

False

Ef Hrúturinn ætlar að ná langt, þarf hann að læra að stjórna skapi sínu og ætti að huga meira að þörfum og skoðunum annarra, til að komast hjá árekstrum.

True 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þröstur Unnar

Hvurjar eru þínar þarfir Dúfan mín.

Þröstur Unnar, 27.7.2007 kl. 20:03

2 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Ég ....í kasti

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.7.2007 kl. 20:12

3 Smámynd: Þröstur Unnar

Aukakast jess Arrrrrrrrrggggggg hóst meira arrrrrggg

Þröstur Unnar, 27.7.2007 kl. 20:17

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þröstur erum við bæði Hrútar?? ekki slæmt. Ég get gengist við öllu sem þú telur upp, fór að skipta mér af pólitík þegar ég var komin yfir fertugt, þú ert örugglega bara of ungur enn    hrútakveðjur að austan.

Ásdís Sigurðardóttir, 27.7.2007 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband