Færsluflokkur: Utanríkismál/alþjóðamál
11.5.2009 | 10:25
Þegar maður hefur drukkið of mikið kaffi...............
og reykt of mikið yfir daginn verður manni hálf óglatt af öllum ósómanum.
Þannig leið mér þegar ég horfði ofan í magann á norska Júróvison-stráknum og sá ekki betur en að smáþorskur af Svalbarðasvæðinu synti um í mjólkurhvítu munnvatninu. Þá vöktu kinnarnar innanverðar á drengnum löngun mína í nætursaltað með hömsum.
Jebb við erum að tala um sigurvegarann, því miður.
Verð að fara að hætta að reykja.
Til hamingju með mánudaginn og ríkistjórnina.
Var það ekki þetta sem þið vilduð, bjálfarnir ykkar.
Allt er þegar þrennt er og fullkomið í fjórða....................
Utanríkismál/alþjóðamál | Breytt 13.5.2009 kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
23.1.2009 | 15:41
Ættu konur með stór brjóst að borga meira fyrir þvottinn heldur en þær með þau nettari?
Það getur munað einhverju þegar til lengri tíma er litið, ef verðlagt er pr. kíló.
Einnig er vert að geta þess að í sumum brjóstahöldurum er víravirki og það vegur þungt á vigtinni.
Það er að sjálfsögðu ámælisvert að vera skrifandi um svona þankagang þegar maður á að vera að brjóta saman skurðstofufatnað.
Þú sem meilaðir mér í morgun og kvartaðir, og þú Sverrir þarna hafið þið það.
Þið sem skiljið ekki húmorinn hér, þá get ég upplýst að ég skil hann ekki sjálfur.........
Utanríkismál/alþjóðamál | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)