o - Hausmynd

o

Elsku hjartað mitt, ég rekst ekki vel............

HPIer óhlýðin og geri ekki eins og aðrir gera.

Vil borða svið um nótt á BSÍ.

Ekki nota gleraugu.

Féll fyrir Míu í Klovn.

Vil sigla til Cab Verde.

Borða kokopuffs með rjóma.

Pirrast á furðuheimi bloggsins.

Langar að fara í hjálparstörf til Íran.

Vil heita Yakouba.

Segi við fólk að það sé feitt (ef það er það)

Segi við konur að þær séu fallegar (ef þær eru það)

Keyri yfir Kríur.

Lakka ekki táneglurnar.

Les ekki Moggann ef hann hefur verið lesinn af öðrum.

Vil kaffi í lítinn bolla, ekki í fötu.

Líður vel í tjaldi upp á öræfum.

Dansa ekki fyrir minna en 700 EURO.

Sé í myrkri.

Verð fyrir lífsreynslu daglega.

Þið eruð öll ágæt nema þú þarna breimaköttur fyrir utan gluggann minn..................


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Það er nú alltaf ákveðinn sjarmi yfir þeim sem rekast illa í hóp! Ég á ekki 700 evrur en kann vel við þig eins og þú ert!

Svo má ég setja eitt svona með - því ég bý ekki á Skaganum.

Hrönn Sigurðardóttir, 26.9.2008 kl. 08:34

2 Smámynd: Þröstur Unnar

Ok Hrönn. Ég kem þá með hjörtun og Lárviðarlaufblað, þú átt væntanlega eitthvað af kartöflum.

Þröstur Unnar, 26.9.2008 kl. 09:12

3 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Það er díll! En þú áttar þig á því að ég nota gleraugu og fer ekki á BSÍ á nóttunni?

Hrönn Sigurðardóttir, 26.9.2008 kl. 10:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband