o - Hausmynd

o

Saurstofan - Skítaveður og pabbablogg...........................

HPIM3009Mikið skelfilega fóru þeir yfir strikið Spaugstofumenn í gærkvöldi, mér meira að seigja ofbauð hvað er hægt að drulla yfir einn einstakling. Mínu áhorfi er lokið hér með á þennan þátt, sem var reyndar farið að styttast í hvort sem var.

Annars bara góður, skítaveður á Skaganum, rok og regn eins og um hásumar sé að ræða. Vaknaði að sjálfsögðu með Jenný, Valdísi og Eydísi, en sú síðastnefnda svaf með Hafmeyjuna (DVD) í fanginu og hefur ekki sleppt henni í allan morgun.

Á meðan pabbinn fékk að hlusta á Valdísi var reynt eftir fremsta megni að vekja athygli á sér með hinum ýmsu setningum sem eru nýlærðar, sem tengjast því að hún er dóttir:

Skríðandi í fangið á honum: Ætlarðu að missa dóttur þína? W00t

Hún alein inni í herbergi: Pabbi komdu til dóttir þína!

Hún: Heyrirðu ekki hvað dóttir þín segir?

Heyrumst ...........


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Krúsubarn þessi stelpa.  Hún á eftir að verða eitthvað stórmerkilegt.

Jenný Anna Baldursdóttir, 27.1.2008 kl. 13:28

2 Smámynd: Huld S. Ringsted

Ég horfi aldrei á spaugstofuna, finnst hún leiðinleg en er búin að sjá umræður um .þennan þátt hérna á blogginu og finnst þetta algjörlega óviðeigandi grín hjá þeim.

Hún dóttir þín er sko efni í hörkukonu, gott að æfa sig á pabbanum

Huld S. Ringsted, 27.1.2008 kl. 19:27

3 Smámynd: Linda Lea Bogadóttir

Guð hvað hún er mikil dúlla !
Og spaugstofan gekk full langt þó þeir væru á köflum fyndnir.
Ólafur hefur alla mína samúð.

Linda Lea Bogadóttir, 28.1.2008 kl. 12:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband