1.2.2009 | 21:53
Við misstum af hamförunum sem gengu yfir þjóðina um helgin.......
þar sem við vorum af bæ, og er slétt sama. Eigum hvort eð er ekki von á neinu nýju fyrr en laukarnir fara að spretta með vorinu.
Það var bara tekin létt leikprufa við Langasand og Himnaríki í gær sem tókst svo gríðar lega vel al litla stelpan mín sofnaði á skikkanlegum tíma í gærkveldi.
Í morgun stóð svo til hjá mér að fara með ljósmyndarahóp Þingvallarúntinn kl 8:45 sharp að staðartíma p.nr 300, en gat ekki fengið af mér að skutla barninu síkáta heim til sín fyrr en um hádegið.
Þá var það of seint að sameinast grúppunni, svo ég fór bara aleinn og yfirgefin í Svínadalinn og skaut þar nokkrum myndum og eina Tófu.
Djö, sem það þyrfti að vera einhver nálægur sem maður gæti kippt með snögglega, í svona óundirbúna bíltúra, tilbúin með nesti, kaffi, nuddolíu og góðaskapið.
Jæja þá, allt gott um það að sinni og kveð ég ykkur með kulda og trekki, kúri ég sofandi........
Athugasemdir
Svona spontant bíltúrar eru einmitt skemmtilegastir. Skil reyndar ekki þörfina á nuddolíu í svoleiðis ferðir - en kaffi og meððí er vitaskuld ómissandi
, 1.2.2009 kl. 22:05
Vá hvað efri myndin er flott!
...en hvaða hamfarir gengu yfir um helgina? Var stórstreymt á Skaganum? :Þ
Hrönn Sigurðardóttir, 1.2.2009 kl. 22:46
Var í stödd í svínadalnum alla helgina með nesti og nýja skó...dí maður gleymdi nuddolíu fannst eitthvað vanta..
Brynja skordal, 2.2.2009 kl. 14:36
Var staddur í bænum og ekkert að gera, á þetta fína nestisbox, kaffibrúsa en lélega myndavél, þér var nær að læðast svona í burtu einn og yfirgefinn.
Er bannað að reykja í Big Red?
Sverrir Einarsson, 2.2.2009 kl. 17:07
Þú gætir náttl. bara skutlast austur eftir og náð í Hrönn, alltaf ein með hundum. Falleg stúlkan þín "like always".
Ásdís Sigurðardóttir, 3.2.2009 kl. 22:58
Hrönn Sigurðardóttir, 15.2.2009 kl. 09:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.