3.1.2009 | 13:21
Það heyrast miklir skruðningar úr þvottahúsinu..............
Ný sestur niður og leikurinn að byrja. Skruðningarnir halda áfram og á stofugólfinu fara að birtast hin ýmsu verkfæri.
Ryksuga, fötur, kústar, tuskur og klútar horfa á mig stingandi augum.
Börnunum hent út í garð.
Sængur, koddar, mottur og margt lauslegt þeytist út á svalir.
Allar hurðir og gluggar eru upp á gátt.
Mér er kalt, verða að taka þátt.
Allt í einu er allt búið og ég sest niður til þess að horfa á síðustu mínúturnar í leiknum.
Maur læðist undan gólflistanum í stofunni og horfir gremjulega á mig.
"Þú veist það fíbblið þitt að það er laugardagur" hugsa ég á móti.
Gleymum ekki smáfuglunum...................
Flokkur: Pepsi-deildin | Facebook
Athugasemdir
Ertu búinn að skipta um eldhúsgardínur?
Hrönn Sigurðardóttir, 3.1.2009 kl. 13:54
Ha, hvenær á að gera það?
Þröstur Unnar, 3.1.2009 kl. 14:22
Nei mér sýnist eitthvað svo breytt í eldhúsinu þínu! Var að spá hvort það væru gardínurnar.........
Hrönn Sigurðardóttir, 3.1.2009 kl. 14:59
Nú ekki tók ég eftir nýjum gardínum en nýju hússtýrunni þinni tók ég eftir, asskoti flott þessi en elsku fjárfestu í gúmmíhönskum handa henni. Fer svo illa með hendurnar þetta Cif
Ía Jóhannsdóttir, 3.1.2009 kl. 16:04
Nei Hrönn, engin breyting. En hún vill stundum rífa niður gardínuna og breggða henni um sig miðja, þegar hún vaskar upp.
Ía, hún á sko alveg gula hanska, en vill ekki nota þá.
Þröstur Unnar, 3.1.2009 kl. 16:22
Gott svona þrifið fólk Og þú duglegur að taka þátt í þrifunum Og flott konan þarna við vaskinn - er hún alltaf svona klædd? Mér yrði kalt
, 3.1.2009 kl. 17:26
gleðilegt át töffari
Ásdís Sigurðardóttir, 3.1.2009 kl. 19:36
Ég vil fá eina svona í stofueldhúsið hjá mér. Og hún má alveg vera fyrir sjónvarpinu þegar ég er að horfa á leik á laugardögum. Verst að hér eru bara rimlagardínur (minna svo á grjótið í den sko).
Sverrir Einarsson, 4.1.2009 kl. 08:57
híhíhí !!!
Gleðilegt ár kæri þröstur !
AlheimsLjós til þín og þinna
SteinaSteinunn Helga Sigurðardóttir, 4.1.2009 kl. 18:08
Ha, hvar fékstu þessa mynd af mér?
Halla Rut , 5.1.2009 kl. 20:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.