4.10.2008 | 17:44
Tónlist dagsins...............................
er í boði MGMT eða í lauslegri þýðingu THE MANAGEMENT.
Lagið heitir "Tími til að láta eins og fífl" held ég.
Þess vegna ætla ég að breggða undir mig betri löppinni og skunda á vit ævintýra stórborgarinnar Reykjavík.
Hér er auðvitað búið að skúra allt hátt og lágt, bæði á vinnustað og heimili.
Er að reyna að lesa Röddina eftir Arnald á kvöldin fyrir svefn, en gengur hægt. Ekki að hún sé leiðinleg, er reyndar mjög góð það sem af er, en........þú veist.
Nú ef allt fer á versta veg er hægt að láta senda sig í bankapósti til baka á mánudag................
Athugasemdir
Þú ert alla vega duglegri en ég með Röddina hún er enn í plastinu sem hún var í þegar ég fékk hana í jólagjöf árið sem hún kom út........og reyndar 2 aðrar eftir hann.
Ég er latur..........bæði við að skúra og lesa.
Já dótabúðirnar draga að þessa dagana
Sverrir Einarsson, 4.10.2008 kl. 17:50
Dótabúðir me ass.
Það verður sko farð á einhverja skítbúlluna, étið og drukkið ótæpilega fram undir morgun, Sverrir minn.
Þröstur Unnar, 4.10.2008 kl. 17:59
Hvað ertu lengi að skunda í bæinn?
Góða skemmtun á leiðinni til baka
Hrönn Sigurðardóttir, 4.10.2008 kl. 18:28
Góða skemmtun, málaðu nú bæinn rauðan með stæl
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 4.10.2008 kl. 23:40
Jæja, djammsögur! djammsögur! Hvert fórstu? Hverja hittirðu? Á hvaða séns lentirðu? Lentirðu í slagsmálum? Ertu þunnur?
Ásta (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 17:01
1. Ekki hugmynd.
2. Þúsundir af ókunnugu kreppufólki.
3. Það vildi mig engin.
4. Neibb.
5. Jamm.
Þröstur Unnar, 5.10.2008 kl. 19:48
...léleg djammsaga! Hér kom ég og ætlaði að drekka í mig eril og ólifnað í gegnum þig (spara - sjáðu til - alltaf að spara......)
Hrönn Sigurðardóttir, 6.10.2008 kl. 08:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.