28.9.2008 | 12:59
Við þurfum að fá snjó............
Búinn að fá um það bil nóg af roki og rigningu þetta haustið.
Hálendið öskrar á frost og hvíta mjöll. Sama gerum vér á þessum bæ.
Var að gramsa í geymslum áðan og stóðst ekki freistinguna og hóf tiltekt á vetrarbúnaði:
Teygjuspotti, snjógalli, vetrardekk, skófla, drullutjakkur, kaffibrúsi, nestisbox, dýna 85x200 cm, sæng, koddi, negldir ísskór, höfuðljós, veiðiriffill f. Hvítabjörn..............
Myndirnar voru teknar á Langjökli sem er víst á hverfanda hveli eins og aðrir jöklar vors lands.
Annars bara þokkalegur með blautt hár.
Elsku hjartað mitt dagurinn er í dag..................
Athugasemdir
Sko, mig langar ekki í snjó strax. Er ekki hægt að panta bara snjó á þínar ferðaslóðir? kvitt og knús
Ásdís Sigurðardóttir, 28.9.2008 kl. 13:08
Notarðu teygjuna í hárið?
Annars get ég alveg unnt þér þess að fá snjó á hálendið!
Passaðu uppá hjartað þitt Krúttkveðjur
Hrönn Sigurðardóttir, 28.9.2008 kl. 16:07
Nei Þröstur, við þurfum að sætta okkur við það sem við fáum ekki breytt og þar kemur veðrið andskoti sterkt inn.
Jenný Anna Baldursdóttir, 28.9.2008 kl. 17:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.