26.9.2008 | 21:34
Það var kvöld eitt að hjónin höfðu lagst til hvílu fyrir nóttina að konan varð vör við að eiginmaðurinn............
snerti hana á mjög óvenjulegan hátt.
Fyrst renndi hann hendinni yfir axlirnar á henni og efrihluta baksins.
Síðan renndi hann hendinni mjög létt yfir brjóst hennar .
Þá hélt höndin varlega niður með síðunni og yfir magann og síðan niður með síðunni hinu megin niður að mitti.
Hann þuklaði síðan mjöðm hennar fyrst öðru megin og síðan hinu megin.
Hönd hans fór síðan niður eftir lærunum utanverðum.
Hönd hans strauk síðan vinstra lærið varlega að innanverðu og eins við hægra lærið.
Þegar þarna var komið var hjartsláttur konunnar orðinn örari og hún titraði aðeins og hagræddi sér í rúminu.
Þá hætti maðurinn skyndilega og sneri sér yfir á hina hliðina í rúminu.
"Af hverju ertu hættur" hvíslaði konan.
?
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Athugasemdir
Hrönn Sigurðardóttir, 26.9.2008 kl. 21:41
Hrönn:
Hann hvíslaði til baka " Ég er búinn að finna fjarstýringuna"!!
Þröstur Unnar, 26.9.2008 kl. 21:54
sjúkkett!! Ég hélt enn og aftur að ég væri komin á vafasama síðu....
Hrönn Sigurðardóttir, 26.9.2008 kl. 22:22
....svo hefði ég lamið hann með fjarstýringunni!
Hrönn Sigurðardóttir, 26.9.2008 kl. 22:23
þú áttir ekki að koma svona fljótt með svarið, þetta hefði getað teygst út í hið óendanlega. Góða helgi
Ásdís Sigurðardóttir, 26.9.2008 kl. 22:48
sammála Ásdísi hefðir ekki átt að seigja svarið strax En hafðu góða helgi
Brynja skordal, 27.9.2008 kl. 02:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.