27.9.2008 | 09:00
Leikskóli með áherslu á tónlist og heimspeki.
Maður þarf ekki að vera háskólagenginn til að nema fræðin þau.
Leikskólinn okkar, Vallarsel er þessum dásemdum gæddur.
Tilvitnun í námsstefnu leikskólans:
"Með því að leggja stund á heimspekivinnu með börnunum - nota opnar spurningar, hvetja börnin til að rannsaka málin, skoða málin frá öllum hliðum þannig að börnin átti sig á margbreytileikanum. Með spurningum heimspekivinnunnar og vangaveltum hennar eykst skilningur barnanna á sjálfum sér og öðrum. Að vinna með heimspeki vekur upp og/eða viðheldur undrun og forvitni barnanna, þannig að þau kynnast nýjum hlutum og hugmyndum.
Þar sem aðaláhersla okkar er á tónlist höfum við ákveðið að flétta heimspekina við texta á íslenskum barnalögum og fá þannig meiri dýpt í tónlistarvinnuna. Við verðum með heimspekistundir þar sem við göngum út frá textum í íslenskum barnalögum. "
Tilvitnun líkur.
Auðvitað erum við löngu vöknuð hér á þessum bæ og erum að njóta morgunstundarinnar með háværu og óeðlilega skræku tali.
Til hávaða-jöfnunar syngjum við bara nokkur ABBA lög á eftir, í eðlilegri tónhæð.
Athugasemdir
Flott stefna.
Kveðja til Snúllhildar.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.9.2008 kl. 11:28
Sniðugt að flétta heimspekina við eitthvað sem þau kunna!
Smjúts á ykkur Skagamenn
Hrönn Sigurðardóttir, 27.9.2008 kl. 11:46
Kveðja á prinsessuna og þig. Eigið ljúfa helgi saman.
Ásdís Sigurðardóttir, 27.9.2008 kl. 15:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.