27.8.2008 | 10:57
"Gerðu svo vel" getur valdið misskilningi og höfnun..............
alla vega í mínu tilfelli áðan, þegar ég ætlaði að panta mér tíma hjá ónefndri Húðsjúkdómalæknastöð samkvæmt eindregnum tilmælum heimilislækniskonunnar minnar fyrir þrem árum.
Ég fékk nefnilega rauðan blett á ennið þarna fyrir þrem árum síðan, svona eins og fallegu konurnar í austurlöndum hafa, nema að minn blettur er rauður en þeirra brúnn, og ég finn til óþæginda í fegurðarblettinum annað slagið.
"Má bjóða þér að koma mánudaginn þrettánda október? "
"Þú meinar á þessu ári?"
"Já" svaraði hún áhugalaus.
"Heyrðu ég ætla að athuga annars staðar"
" Gerðu svo vel"
Pirr:Gerðu svo vel að panta ekki tíma hjá okkur. Gerðu það plís farðu eitthvað annað með þinn blett.
Minni á að mjög líklega er ég með ólæknandi krabbamein, og á ekki langt eftir.............
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Athugasemdir
Þekki þetta ó svo vel.
Jenný Anna Baldursdóttir, 27.8.2008 kl. 11:03
Humm, nei þú ert ekkert að yfirgefa þessa jörð í bráð en leitaðu bara annað gjörðu svo vel heheh... bjánalegur frasi!
Ía Jóhannsdóttir, 28.8.2008 kl. 10:32
Var þetta kannski í Domus medica. Svona er að hringja þangað. Eins og konan sé að gera manni stórgreiða með að svara símanum.
Farðu bara á læknavaktina.
Halla Rut , 28.8.2008 kl. 11:25
Eða bara á bráðamóttökuna, sýnist þetta geta verið sjaldgæft og bráðdrepandi afbrigði af holdsveiki ...
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.8.2008 kl. 12:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.