3.7.2008 | 19:50
Um hádegið síðastliðinn sunnudag fékk maður.........
mjólk og köku. Svo var eitthvað í Fréttablaðinu sem þurfti að nánari athugunar við. Og þá er gott að geta brugðið á sig gleraugum gamla mannsins, sem eru að vísu apoteksgleraugu, en kallinn sér furðu vel enn þá.
Eftir það var gengið á smábátabryggjuna og kíkt ofan í.
"Sérðu Krabbana pabbi?
"Þetta eru ekki Krabbar, þetta er þari"
"Víst, ég þekki Krabba, vertu rólegur pabbi"
Þetta að "vera rólegur" er hátískan í dag, hjá barninu.
Verum bara róleg þar sem við förum, hvort sem það er í umferðinni, á blogginu, á tjaldstæðunum (yfir 23ja) eða bara heima.
Þessi færsla flokkast sem rangsælis url............
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Hún er flott dúllan með gleraugun, mundu að tjalda hvergi í sumar þú ert of ungur svona á rangsælis urli.
Ásdís Sigurðardóttir, 3.7.2008 kl. 20:01
Æ ég var farin að sakna hennar , gott að sjá hana aftur megakrúttið
Ía Jóhannsdóttir, 4.7.2008 kl. 07:43
Takk fyrir okkur.
Þröstur Unnar, 4.7.2008 kl. 15:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.