11.6.2008 | 19:53
Er gjörsamlega að tryllast úr leti................ef það er þá hægt.
Umhverfið er nú ekki flóknara en þetta. Bærinn sem ég er í er yfirmáta rólegur, en samt bara passlega fyrir svona afslöppunarferð.
Eitt diskótek og svo náttúrulega strandbarirnir.
Einn og einn syfjaður Mexíkani á stangli, veit ekki hvað í greflinum þeir eru að þvælast hér í kuldanum.
Svo eru auddað gömludansarnir á kvöldin, og ég stóðst ekki mátið og myndaði þessar yndislegu stúlkur sem dönsuðu af mikilli innlifun......
með góðfúslegu leyfi móðurinnar að sjálfsögðu.
Er auðvitað búinn að heimsækja Benedorm og það að kvöldlagi meir að segja. Þar á sér stað hið mesta sukk og svínarí ever, en geggjað kúúl samt að mörgu leiti.
Nema þá helst vændið sem á sér stað þar og hvað er í raun stutt á milli gæfu og ógæfu. Ég þarf eiginlega að tjá mig um það meira seinna.
Í því sambandi segi ég bara í bili, djöfulsins andskotans fucking helvíti.
Annars bara góður og sóldökkur á þeim líkamshlutum sem standa út fyrir sólskyggni barsins......
Athugasemdir
Hafðu það hrikalega gott og haltu áfram að vera latur!!!
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 11.6.2008 kl. 20:07
Til hamingju með að vera þarna í sólinni og hitanum.
Jenný Anna Baldursdóttir, 11.6.2008 kl. 23:16
Maður verður nú grænn af öfund af minna tilefni...
Lára Hanna Einarsdóttir, 11.6.2008 kl. 23:20
Njóttu þín í botn og mundu eftir að fara úr hvítu sokkunum, sokkaför eru svo lúmmó.
Rétt að láta vændið eiga sig, sýnist mér
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 11.6.2008 kl. 23:54
Njóttu vel!
Ía Jóhannsdóttir, 12.6.2008 kl. 09:40
Njóttu
Linda Lea Bogadóttir, 15.6.2008 kl. 18:47
njóttu þess vel að vera í hitanum .....
Rebbý, 15.6.2008 kl. 22:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.