6.6.2008 | 15:12
Gerið ekkert sem ég mundi ekki gera.............
Búinn að fá afleysingu í nærbuxnaþvottinn og ætla upp í einhverja flugvél á morgun og sjálfstýringin sett á SSA. Reiknað er með að brotlenda fyrir utan bæinn Albir á Spáni annað kvöld.
Reikna með að fara í stuttbuxur, strigaskó, snjóhvíta hnésokka og spásséra um listasöfn og aðra menningarstaði.
Býst fastlega við sólbrúnum kroppum um víðan völl, sem ég að sjálfsögðu leiði hjá mér eins og miðaldra hefðarmanni sæmir.
Get ekki lofað því að fylgjast ekki með ykkur hérna ormarnir ykkar, á meðan.
Ef ég verð ekki kominn aftur á haustmánuðum, þá verð ég í Úganda og þið getið gleymt mér....
Flokkur: Spaugilegt | Facebook
Athugasemdir
Hvað ertu að plastera alsberri konu inn á þetta blogg perrmundur djóns?
Er þaðhún sem á að fá hringinn?
Góða ferð.
Jenný Anna Baldursdóttir, 6.6.2008 kl. 15:38
Góða ferð og njóttu... Bauðstu Gurrí með? Það er líklega hlýrra þarna SSAusturfrá en hjá mjólkurkælinum.
Lára Hanna Einarsdóttir, 6.6.2008 kl. 16:10
Æi, Jenný. Ég fann ekki karl.
LH. Gurrí harðneitaði að fara. Held að hún sé hrædd um að missa af stelpumánuðinum á Söð 2.
Þröstur Unnar, 6.6.2008 kl. 17:15
Gurrí er bara hrædd um að missa af fótboltanum!
Lára Hanna Einarsdóttir, 6.6.2008 kl. 20:02
Áttu stefnumót við þessa?? ef svo njóttu vel. Fátt eins gott og góður dr.....
Ásdís Sigurðardóttir, 6.6.2008 kl. 20:26
Njóttu vel þó Gurrí vanti
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 6.6.2008 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.