27.5.2008 | 18:56
Þá sjaldan að föður sé hafnað af dóttur sinni.........
Eins og allir vita má alls ekki bora í nefið og hvað þá borða það, það er alveg á hreinu. En þegar pabbinn settist við hlið hennar í sófann og ætlaði að njóta Stundarinnar Okkar sagði hún:
"Pabbi farðu"
"Hvert?"
"Í tölvuna"
"Af hverju, ætlarðu nokkuð að bora í nefið?"
"Já, en ég ætla ekki að borða það" og hreinskilnin skein úr andlitinu.
Náðum samkomulagi um slíkt athæfi sæmdi ekki prinsessum, og snérum okkur að Stundinni.
Annars erum við bara góð............
kl:21:50 pé ess. Þú ert viðskiptavinur minn númer áttatíuþúsund og einn....má bjóða þér köku?
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:56 | Facebook
Athugasemdir
Hún er efnileg sú stutta, fer sínu fram. Það veit á gott.
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 27.5.2008 kl. 22:51
Alltaf jafn krúttleg litla prinsessan.
Ía Jóhannsdóttir, 28.5.2008 kl. 08:23
Alveg hreint yndisleg.
Guðríður Hrefna Haraldsdóttir, 28.5.2008 kl. 22:50
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.