3.5.2008 | 08:45
Jú það er rétt - Ég ætti að vera staddur á Vatnajökli núna.......
en eftir langar og strangar vangaveltur um kostnað ferðarinnar, samanburð á helgarferð til Köben, Manchester, París, London, eða tunglferð þá endaði það með því að ég strækaði á ferðina og sit heima í uppreisn yfir olíuverði án þess að nokkur veiti því minnstu athygli.
Kostnaður við jökulferð.
Olía 40.000 kr
Samlokur 1.400 kr
Vatn 0 kr.
Samtals: ISK 41.400.......
Ferð til Köben:
Flug gisting og morgunmatur 70.000 kr.
Carlsberg 1.200 kr
Aðdáun Danskra yngismeyja 0 kr.
Samtals: IKR 71.200
Sko, ekki segja mér að þið séuð sofandi ennþá svefnpurkurnar ykkar. Hér varð farið á fætur kl:07:00 sharp á tíma (GMT) Casablanca, Monrovia, Reykjavik, og beðið eftir Gríslingunum í sjónvarpi allra landsmanna, og so Ávaxtakörfuna og so Hafmeyjuna og so Dóru, og so, og so, og " pabbi þú mátt alveg horfa á með mér "
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 09:01 | Facebook
Athugasemdir
Krúttkast.
P.s. Það eru áhöld um kostnaðarleysi þegar kemur að aðdáun danskra ungmeyja. Sko það fer eftir landfræðilegri stöðu þinni í Köben. Ertu við Istegade mun hún ekki vera ókeypis addna.
Jenný Anna Baldursdóttir, 3.5.2008 kl. 09:20
Þú færir nú ekki að leggja leið þína í Istegade, held þú hafir meiri klassa en það hehehhe.... Eigðu áfram góða helgi með prinsessunni.
Ía Jóhannsdóttir, 3.5.2008 kl. 20:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.