1.5.2008 | 09:59
Af því að ég vil ekki hafa klámmynd........
efst á blogginu mínu þegar ég opna það, en tími ekki að henda henni, og til mótvægis við síðustu færslu, þá birti ég hérna eitt af mínum uppáhaldsljóðum.
½ dl hörfræ
½ dl sesamfræ
1 dl sólblómafræ
½ dl rúgkjarnar
4 dl vatn
8 dl hveiti
1 dl hveitiklíð
¾ msk salt
2 ½ tsk þurrger
1 lítið egg
3 ½ dl volgt vatn
Hafið öll sem yndislegastan dag.
Farinn að þvo nærjur, hvíta sloppa og græn föt...........
1. maí my ass
Athugasemdir
Þetta er framkvæmdaljóð. Mjög flott og hefurðu prufað að verkgera viðkomandi ljóðlist?
Jenný Anna Baldursdóttir, 1.5.2008 kl. 10:33
Auddað Jenný, í átta ár var þetta verkgert daglega og hef próf uppá vasan því tilheyrandi.
Þröstur Unnar, 1.5.2008 kl. 10:38
Vonandi hefur þú haft vit á því að sortera þvottinn áður en þú skelltir í vél annars kemur það hvíta út sem kúkagrænt, afsakaðu orðbragðið heheheh
Ía Jóhannsdóttir, 1.5.2008 kl. 17:44
Þetta er uppskrift af brauði, er það ekki? Ertu bakari?
Lára Hanna Einarsdóttir, 1.5.2008 kl. 18:09
Já Lára, uppgjafa bakari.
Þröstur Unnar, 1.5.2008 kl. 19:12
Hvað gera menn þegar þeir hætta að baka?
Lára Hanna Einarsdóttir, 1.5.2008 kl. 19:20
Þvo þvott LH.
Þröstur Unnar, 1.5.2008 kl. 19:23
Ertu með langt nám að baki í þvottafræðum?
Lára Hanna Einarsdóttir, 1.5.2008 kl. 20:20
15 ár LH.
Þröstur Unnar, 1.5.2008 kl. 20:46
Égskalsegjaykkurþað! Rosalega hlýturðu að vera flínkur í þvottunum. Ég er viss um að ef Ía hefði vitað það þá hefði hún ekki reynt að gefa þér góð ráð.
Tekurðu að þér verkefni handan flóans eða er þetta bara heimavinna?
Lára Hanna Einarsdóttir, 1.5.2008 kl. 22:31
Jebb LH tek alskyns verkefni. Þvottagetan er 1000 kg á dag.
Þröstur Unnar, 1.5.2008 kl. 22:35
Þú ert ofurmenni!
Lára Hanna Einarsdóttir, 1.5.2008 kl. 23:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.