22.4.2008 | 18:04
Þessi stóri strákur sem fæddist í Vestmannaeyjum ................
á sumardaginn fyrsta og gerði pabba sinn hrikalega stoltan þann daginn, eins og alla aðra daga síðan, varð 25 ára í gær.
Þarna er hann Ragnar Þór í sinni uppáhalds múnderingu 24 ára
Til hamingju flotti strákur.
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 21:02 | Facebook
Athugasemdir
Þetta er fallegur drengur. Ójá, en hvernig væri að leyfa nafninu að fylgja með?
Til hamingju með piltinn. Hann á sama afmælisdag og hún amma mín sem ól mig upp. Ein besta manneskja sem ég hef komist í kynni við á allri minni æfi.
Jenný Anna Baldursdóttir, 22.4.2008 kl. 19:16
Rosalega flottur og myndalegur, strákurinn.
En bíddu nú við, fæddist í Eyjum fyrir 25 árum .... Einhverjar bjöllur fara nú af stað. Voruð þið sem sé búsett þar? Ein svagalega forvitin
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 22.4.2008 kl. 22:06
Rosalega er hann líkur þér.
Kristín M. Jóhannsdóttir, 22.4.2008 kl. 22:09
Jenný, takk fyrir okkur. Greinilega gott fólk sem hefur þennan fæðingardag.
Guðrún. Já, vorum búsett þarna í "gamla daga".
Kristín, jebb, kannast við kommentið.
Þröstur Unnar, 23.4.2008 kl. 09:02
Til lukku með fallega piltinn þinn
Brynja skordal, 23.4.2008 kl. 16:45
Er enn að reyna að kveikja, ljósið hlýtur að kveikna, fyrr en síðar. Tek undir með Kristínu, þið feðgar mjög líkir.
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 23.4.2008 kl. 22:58
P.S Mér finnst ég endilega muna eftir Ragnari sem barni, man andlitið en síðan blank. Þetta skal koma
Guðrún Jóna Gunnarsdóttir, 23.4.2008 kl. 22:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.