14.9.2007 | 20:26
Seinna, seinna ætlaði hann að segja henni þetta allt saman alveg eins og það hafði verið, hvernig hann hugsaði, hvernig honum leið,
og hvenig hún leit út í augum hans. Allt saman. Hann yrði dæmdur, og þá það. Hann sá fyrir sér vinnukonuvöðvana á henni, slappa og dinglandi á meðan hún vaskaði upp. Hokin í herðum og buguð. Annað slagið saug hún upp í nefið, eins og hún væri kvefuð, en hann vissi að hún var að gráta. Hann þoldi það ekki, hataði það, en gat ekki breytt því.
Sú sem kjaftaði mest spurði hvort honum lægi nokkuð á. "Nei, ekkert sérstaklega, svaraði hann.
@motta
Athugasemdir
Marta B Helgadóttir, 14.9.2007 kl. 21:34
.....bíð spennt! sorglegt og spennandi
Marta B Helgadóttir, 14.9.2007 kl. 21:35
Jahérna hér...... ég bíð róleg.
Anna Einarsdóttir, 15.9.2007 kl. 00:05
ég græt með henni ....
Rebbý, 15.9.2007 kl. 00:34
hvað eru vinnukonuvöðvar?
Jóna Á. Gísladóttir, 16.9.2007 kl. 10:15
Upphandleggsvöðvarnir undir.......... einnig kallaðir mjaltakonu vöðvar.
Þröstur Unnar, 16.9.2007 kl. 11:59
ó... þú meinar bingóvöðvinn
Jóna Á. Gísladóttir, 16.9.2007 kl. 14:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.