13.9.2007 | 21:41
Í aftursætinu sat þessi ljóshærða. Hún hafði klippt sig stutt, ekki alveg stutt, svona þvert á hálsinn og aðeins upp í hnakkann. Djöfull var hún orðin flott....
Hann horfði á hana í baksýnisspeglinum, og hún horfði á móti en leit svo undan. Honum sýndist hún vandræðaleg. "Það má ekki núna, hugsaði hann. Sú sem var frammí kjaftaði stanslaust, og það var fínt. Þá gat hann aðeins hugsað málið á meðan.
Hann var að koma að heiman, fór út að "keyra". Hann vissi að hann hafði sært hana, en það var eins og honum stæði á sama, en samt vorkenndi hann henni.
@motta
Athugasemdir
hmmmm?
Marta B Helgadóttir, 13.9.2007 kl. 22:35
hux hugx
Marta B Helgadóttir, 13.9.2007 kl. 22:37
tek undir með Mörtu.....en það er framhald er það ekki Þröstur?
Heiða Þórðar, 14.9.2007 kl. 00:04
Mig klæjar í hausinn.... altså ég er að klóra mér í hausnum.... yfir þér. Sjáum hvað þú gerir næst.
Anna Einarsdóttir, 14.9.2007 kl. 17:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.