Þegar maður vill hafa hina fullkomnu þögn er alltaf eitthvað sem fær mann til að rjúka á lappir aftur og aftur, þangað til maður gefst upp og sættir sig við það að ekki hægt að þagga niður í umhverfinu.
Eldhúsklukkan: Taka batteríið úr.
Dropar úr krananum í eldhúsinu: Skrúfa fastar fyrir.
Krakkinn í næsta húsi, sem hoppar alltaf sama kollhnýsinn, og stynur alltaf þegar hann lendir: Garga út um gluggann, "þegiðu krakki"
Vindgnauðið í lofttúðunni í þvottahúsinu: Loka þvottahúsinu.
Malið í tölvunni: Hendenni í vegg.
Rigningin: Taka þátt í vökvuninni.
Minn eigin andardráttur: Hljóðnar á endanum.
Besta svefnmeðalið mitt er andardráttur dóttur minnar.
See you..........
Flokkur: Vísindi og fræði | Facebook
Athugasemdir
Þú hefur þá ekki hent tölvunni í vegginn, bíddu með það aðeins lengur.
Ásdís Sigurðardóttir, 10.9.2007 kl. 21:54
Ert'á túr, Þröstur?
Hugarfluga, 10.9.2007 kl. 22:16
Hver ertu Dúa, áttu blogg?
Nei fluga góð, kominn heim úr túrnum.
Þröstur Unnar, 10.9.2007 kl. 22:21
Þröstur ég henti einmitt batteríinu úr minni eldhúsklukku á laugardaginn í þynnkunni "Þurfti" nebblega í afmæli kvöldið áður.
Marta B Helgadóttir, 10.9.2007 kl. 22:54
væll er þetta - reyndu að búa við félagsmiðstöð unglinga ... alltaf fjör hjá mér
Rebbý, 11.9.2007 kl. 18:54
Rebbý ég bý við félagsmiðstöð Geitunga, og þeir eru fínir félagar. Þeir reka í burtu unglinga.
Þröstur Unnar, 11.9.2007 kl. 20:23
Þú ert hinn myndarlegasti karlmaður Þröstur
Jóna Á. Gísladóttir, 11.9.2007 kl. 23:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.