2.9.2007 | 15:00
Varð að leita á sjúkrahús eftir að kennsl hafði verið borið á hann.
Þetta er ógeðslegur áburður sem borin er á fólk og getur í sumum tilfellum verið hættulegt efni. Ég fékk einu sinni kennsl í andlitið og varð að leita mér aðstoðar við að ná því af mér aftur.
Ég hef líka stundum borið kennsl á fólk, en þeim tilfellum fer nú fækkandi með aldrinum og versnandi sjónmynni, kannski sem betur fer.
Æi, hef ekkert annað að gera..........
Flokkur: Vísindi og fræði | Breytt s.d. kl. 15:17 | Facebook
Athugasemdir
hahaha.. já sumir dagar eru bara þannig að vitleysan verður meiri..
Björg F (IP-tala skráð) 2.9.2007 kl. 15:52
ruglukollur ég ber engin kennsl á þig
Ásdís Sigurðardóttir, 2.9.2007 kl. 18:17
Shjúkkit Ásdís
Þröstur Unnar, 2.9.2007 kl. 18:27
LOL. Ég þurfti að lesa þetta 3x áður en ég skildi þetta. Sorry, maður er blondie inn við beinið...
Jóna Á. Gísladóttir, 2.9.2007 kl. 19:48
Það er akkúrat út af þessu sem ég er hættur að bera kennsl á sjálfan mig. Eða þannig sko..........
Hjalti Garðarsson, 3.9.2007 kl. 00:14
haha nú á ég eftir að ganga um með grímu svo engin beri kennsl á mig.
Ólöf Anna , 3.9.2007 kl. 00:27
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.