14.8.2007 | 20:52
Fimm ára drengur stóð og horfði á húsið sitt brenna
pabbinn og mamman hlupu til og frá með vatnsfötur. Hann sá boltann sinn í eldinum og ætlaði að sækja hann, en var stöðvaður. Stóra tréð við svefnherbergisgluggann hans sviðnaði og varð að kolum.
Þetta var gamalt timburhús.
Drengurinn ég.
Athugasemdir
Svo framarlega sem að enginn slasaðist...
Jóna Á. Gísladóttir, 14.8.2007 kl. 21:20
skelfilegt að horfa upp á heimili fólks brenna, hvað þá sem barn sem skilur þetta ekki ..... boltinn er fjársjóður, ekki satt
Rebbý, 14.8.2007 kl. 21:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.