6.8.2007 | 15:41
Brekkusöngurinn í gærkvöldi var frábær
Við vorum bara þrír saman núna, ég og vinir mínir á myndinni. Tveir okkar höfðu gert þetta sex sinnum áður, og í öll skiptin þ.m. talið núna, sungum við miklu lengur en Árni.
Erill var víst í Eyjum og Ýfingur á Akureyri. Veit ekki hvar Róstrur var en vona að hann lendi ekki á milli Erills og Ýfings á heimleiðinni í dag.
En hérna var bara sungið og spilað án alls Erills.
Síjú
Erilsamt hjá lögreglu þegar líða fór á nóttina | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
þeir eru flottir strákarnir. Afhverju ert þú ekki með á myndinni Þröstur?
Jóna Á. Gísladóttir, 6.8.2007 kl. 21:17
Ég þurfti að taka myndina.
Þröstur Unnar, 6.8.2007 kl. 22:06
það er nú hægt að stilla flestar camerur á timer, er það ekki?
Jóna Á. Gísladóttir, 7.8.2007 kl. 01:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.