Færsluflokkur: Mannréttindi
28.5.2009 | 14:09
Ég tók eftir því í gærkvöldi að ég er ógiftur................
og þarf þess vegna að gifta mig sem fyrst, eða alla vega áður en haustvertíðin hefst.
Sem sagt í hálfleik þar sem Börsungar voru yfir gegn Júnæted, fann ég til mikillar þurrðar í kverkunum og tók eftir því að ölið var enn þá inn í ísskáp, kvöldmaturinn ekki tilbúinn, ég illa lyktandi eftir amstur dagsins og ekkert vatn í baðkarinu.
Svo tók ég eftir öðru sem kom mér eiginlega mest á óvart, "ég var einn".
Það skal tekið fram að ég hef aldrei verið giftur svo ég veit kannski ekki alveg hvernig þetta virkar, en það hlýtur að vera eitthvað í þessa áttina því það eru svo margir svona, alltso giftir.
Þessi færsla er yfirfærð á Facebook líka, svo málið leysist sem fyrst................