o - Hausmynd

o

Óvænt brúðkaup - Fimmtugsafmæli - Og smá væmniskast.......

Vinkona góð og prúð sendi þau skilaboð til okkar bæjarbúa nú um helgina að þetta bæjarfélag sem annars er mjög friðsælt og gott, að mætti alveg hrista aðeins upp í því. Það gerði hún með því að gifta sig með dags fyrirvara. Þann 08.08.08 gerðist það, og ég veit ekki en vona samt að Gunni hafi verið með. Annars eins og ég þekki þessa ágætu hefðarkonu gæti hún svo sum hafa gleymt honum í Bílanaust eða í Nínu. Annars bara til hamingju dúllurnar mínar.

Fimm tuga öldrunar afmælishátíð verður svo haldin í Himnaríki á morgun kl 16:00 sharp. Mér var boðið auddað, en varð því miður að afþakka vegna anna. Annars hefði nú verið gaman að vera fluga á vegg þarna, með myndvél.

Gurrí Himnaríkisfrú mætti svo óvænt tvær mínútur fyrir lokun á vinnustað minn, með lífvörð sér við hlið, bauð góðan daginn (ískalt) og sagði: "Hreinsa kápuna og buxurnar, liggur ekkert á þeim en jakkann skal hafa tilbúinn um hádegið á morgun"

Mér rann kalt öl milli skinns og hörunds þegar ég sá svipinn á lífverðinum og sagði bara "ekkert mál frú mín góð."

*Gúlp, maður verður að standa sig í þjónustunni. Vill ekki lenda í þeim á DV........

Innilega til hamingju með daginn Gurrí mín.

 

Og smá væmniskrull fyrir okkur feðgin..........Eydís Lára


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Litla dúllan þín er alltaf jafn sæt.  Hver spilar svona vel ?  fíla þetta lag mjög vel. Verst af þú kemst ekki í himnaríkispartýið, þar verður sko örugglega stuð. 

Ásdís Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 00:17

2 Smámynd: Ía Jóhannsdóttir

Stundum langar mann til að vera fluga á vegg það er satt.

Kveðja inn í góða viku.

Ía Jóhannsdóttir, 12.8.2008 kl. 05:17

3 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Akranes er krúttlegur staður með krúttlega villinga innanborðs.

Mínus Magnús.

Jenný Anna Baldursdóttir, 12.8.2008 kl. 07:59

4 Smámynd: Þröstur Unnar

Takk fyrir innlitin. Hef ekki hugmynd um hver spilar svona vel Ásdís og Jenný Maggi er nú smá krútt stundum.

Þröstur Unnar, 12.8.2008 kl. 10:34

5 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

yndisleg litla daman, ert þú að spila svona vel hauslaus ?

Kærleikur til þín og allra

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 12.8.2008 kl. 16:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband